Læknanemar skora á stjórnvöld að bregðast við fjárþörf stofnana Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. desember 2016 21:20 Félag læknanema gagnrýnir fjárlagafrumvarpið. vísir/vilhelm
Félag læknanema skorar á stjórnvöld að mæta þeirri fjárþörf sem uppi er hjá helstu stofnunum heilbrigðis- og háskólakerfisins í meðferð á fjárlögum næsta árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem send var út í kvöld. Félagið óttast að án frekari aðgerða muni íslenskt heilbrigðis-og háskólakerfi ekki geta sinnt viðunandi menntun heilbrigðisstarfsfólks til frambúðar. Félagið fagnar auknum fjárveitingum sem samþykktar voru á Alþingi í dag en segir ljóst að þær fjárhæðir sem um ræðir duga ekki til þess að stærstu stofnanir þessara kerfa geti viðhaldið rekstri sínum án þess að grípa til niðurskurðaraðgerða. Félagið bendir á að þær fjárhæðir sem um ræðir eru lágmarksfjárhæðir sem dugi einungis til þess að viðhalda óbreyttum rekstri stærstu stofnana kerfanna og ráðast í brýnustu verkefni. Landspítalinn sé sem fyrr rekinn fyrir um það bil helminginn af því sem sambærileg sjúkrahús eru rekin fyrir á Norðurlöndunum á sama tíma og meðalframlag á hvern nemanda við Háskóla Íslands sé um helmingur af framlagi á hvern nemanda á hinum Norðurlöndunum.
Alþingi Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira