Justin spilar ekki aftur með Stjörnunni fyrr en í fyrsta lagi 16. febrúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2017 22:00 Justin Shouse í leik á móti Tindastól. Vísir/Anton
Höfuðmeiðslin sem Justin Shouse varð fyrir á æfingu fyrr í þessum mánuði hafa sett framhald hans inn á körfuboltavellinum í mikla óvissu. Justin Shouse, leikstjórnandi Stjörnunnar í Domino´s deild karla í körfubolta verður ekkert með Garðabæjarliðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir bikarúrslitavikuna.Karfan.is hefur það eftir Hrafni Kristjánsson, þjálfara Stjörnuliðsins, að Shouse munu hvíla í næsta leik og gæti því náð þriggja vikna hvíld. Á þessum vikum mun Stjarnan síðan leita ráða hjá læknum um hvað sé besta að gera í framhaldinu. Justin Shouse lék ekkert með Stjörnunni í seinni hálfleik á móti Keflavík í síðustu umferð og missti alveg af leiknum á móti Njarðvík í vikunni á undan. Justin Shouse fór greinilega of snemma af stað í Keflavíkurleiknum því hann kom ekki aftur inn í sal eftir hálfleikinn. Hrafn Kristjánsson talaði um það eftir leikinn að Justin hafi grátandi í klefanum og beðið alla liðsfélaga sína afsökunar. Stjarnan mætir botnliði Snæfells í næsta leik sínum og því er það ekki mikið áhyggjuefni þótt að Justin sé ekki með. Í framhaldinu er síðan bikarúrslitavikan þar sem Stjarnan er ekki með og næsti deildarleikur liðsins er því ekki fyrr en 16. febrúar en liðið mætir þá Þór Þorlákshöfn á heimavelli. Justin Shouse er með 17,1 stig og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í leik í þeim fjórtán leikjum sem hann hefur spilað í Domino´s deildinni á tímabilinu.
Dominos-deild karla Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Í beinni: Vestri - Fram | Úrslitaleikur undir Íslenski boltinn „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Körfubolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira