Fimm prósent skráðra fulltrúa á ársþing KSÍ eru konur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. febrúar 2017 08:00 Björn Einarsson og Guðni Bergsson eru í framboði til formanns KSÍ. Vísir/Stefán
Fjórar konur eru á meðal 83 skráðra aðalþingfulltrúa á ársþingi KSÍ sem fram fer í Vestmannaeyjum um helgina. Alls eru 83 þingfulltrúar skráðir samkvæmt ksi.is en enn á eftir að taka við skráningum fram að þingi. Framkvæmdastjóri KSÍ segir að skráning gangi vel. Hulda Birna Baldursdóttir (ÍA), Katla Guðjónsdóttir (Víkingur), Feldís Óskarsdóttir (Leiknir) og Guðlaug Sigurðardóttir (Víði) eru konurnar sem eru skráðar sem þingfulltrúar á þinginu um helgina. Alls hafa 153 fulltrúar rétt til setu á þinginu en kjörbréfum hefur verið skilað fyrir 83 fulltrúa miðað við frétt sem birtist á ksi.is í gær. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við fréttastofu í gærkvöldi að skráning gengi vel. Hún ætti von á fleiri fulltrúum í dag og á morgun. Í þeirra hópi eru fleiri konur, t.d. Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks sem býður fram krafta sína í aðalstjórn KSÍ. Þar stefnir í harða baráttu en átta berjast um fjögur sæti. Fjórar konur til viðbótar eru skráðar sem varafulltrúar og fá atkvæðissrétt ef einhver aðalfulltrúanna forfallast. Guðni Bergsson og Björn Einarsson eru þeir einu sem eru í framboði til formannsembættis KSÍ. Guðni hefur atkvæðisrétt sem aðalfulltrúi hjá Val en Björn er varafulltrúi fyrir Víking. Ársþing KSÍ hefst í Vestmannaeyjum klukkan 11.00 á laugardag.Að neðan má sjá þá þingfulltrúa sem skráðir höfðu verið til leiks þriðjudaginn 7. febrúar.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira