Sjáðu magnað flautumark Messi í El Clásico í lýsingu Hödda Magg | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. apríl 2017 21:24
Lionel Messi tryggði Barcelona sigur á erkifjendunum í Real Madrid með ótrúlegu flautumarki. Lokatölur 2-3, Barcelona í vil. Leikurinn í kvöld var frábær skemmtun og innihélt fimm mörk og rautt spjald. Casemiro kom Real Madrid yfir á 28. mínútu en Messi jafnaði metin fimm mínútum síðar. Staðan var jöfn í hálfleik en Ivan Rakitic kom Börsungum yfir með glæsilegu marki á 73. mínútu. Nokkrum mínútum síðar fékk Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, að líta rauða spjaldið fyrir ljótt brot á Messi. Varamaðurinn James Rodríguez jafnaði metin á 82. mínútu en Messi átti síðasta orðið. Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma átti Sergi Roberto magnaðan sprett upp völlinn, lagði boltann á Jordi Alba sem sendi hann út í teiginn á Messi sem skoraði framhjá Keylor Navas í marki Real Madrid. Þetta reyndist síðasta spyrna leiksins. Ótrúlegur endir á mögnuðum leik. Þetta var 500. mark Messis fyrir Barcelona og það gat ekki komið á betri tíma. Mörkin úr þessum magnaða leik má sjá í spilaranum hér að ofan í lýsingu Harðar Magnússonar.
Spænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira