Baráttan hefst í Mýrinni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 8. maí 2017 08:29 Leikir liðanna í vetur hafa verið frábær skemmtun. vísir/andri
Úrslitaeinvígið í efstu deild kvenna, Olís-deildinni, hefst í kvöld klukkan 20.00 þegar Stjarnan tekur á móti Fram. Þetta voru tvö sterkustu lið deildarinnar og er búist við afar skemmtilegu einvígi. Bæði lið fengu 35 stig í deildinni en Stjarnan varð deildarmeistari á innbyrðisárangri og munaði þar aðeins einu marki. Það segir mikið um hversu jöfn þessi lið eru. Þau mættust þrisvar í deildinni. Einu sinni var jafntefli og svo unnu þau hvort sinn leikinn. Þau mættust líka í úrslitum bikarkeppninnar og þar vann Stjarnan með einu marki, 19-18. Stjarnan er því bæði deildar- og bikarmeistari. Stjörnustúlkur vilja þó landa þeim stóra eftir að hafa þurft að sætta sig við silfur fjögur ár í röð. Þar af tapaði liðið síðustu tvö ár fyrir Gróttu í úrslitum. Stjarnan náði þó fram hefndum gegn Gróttu með því að vinna einvígið gegn Seltirningum 3-2. Stjarnan vann samt eiginlega 4-1 því Grótta fékk einn vinning að gjöf eftir að Stjarnan hafði teflt fram ólöglegum leikmanni. Fram aftur á móti ruddi Haukum úr vegi sínum í undanúrslitunum. Fram vann einvígið 3-0 en alla leikina þrjá með samtals fimm marka mun.
Olís-deild kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira