Fyrir fimm árum töpuðu þeir með 50 stigum en hvað gerist í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2017 15:15 Haukur Helgi Pálsson var með í leiknum fyrir fimm árum. Vísir/Andri Marinó
Íslenska körfuboltalandsliðið spilar í kvöld síðasta undirbúningsleik sinn fyrir Evrópumótíð í körfubolta sem hefst með leik á móti Grikklandi eftir rúma viku. Síðasta próf íslensku strákanna er á móti gríðarlega sterku landsliði Litháa. Íslenska liðið fór beint til Litháen frá Ungverjalandi þar sem liðið tapað tvisvar sinnum um síðustu helgi. Íslenska liðið hefur þar með tapað þremur síðustu undirbúningsleikjum sínum eftir að hafa unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjunum. Það eru rúm fimm ár síðan að Ísland og Litháen mættust síðast og þá vann Litháen með 50 stiga mun, 101-51. Litháernir voru þá á fullu að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í London. Peter Öqvist þjálfaði liðið þá en nú er Craig Pedersen með liðið. Það eru margir spenntir að sjá hvað íslenska liðið hefur bætt sig á þessum fimm árum en góður mælikvarði á það er leikurinn í kvöld. Sjö leikmenn íslenska liðsins í dag spiluðu á móti Litháum 24. júlí 2012. Það voru þeir: Hlynur Bæringsson (13 stig), Jón Arnór Stefánsson (12), Pavel Ermolinskij (10), Haukur Helgi Pálsson (4), Ægir Þór Steinarsson (3), Logi Gunnarsson (2) og Brynjar Þór Björnsson. Hlynur Bæringsson og Logi Gunnarsson munu báðir leika sinn fjórða landsleik á móti Litháen í kvöld. Leikur Íslands og Litháen hefst klukkan 19.30 eða klukkan 16.30 að íslenskum tíma.
EM 2017 í Finnlandi Körfubolti Mest lesið Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Ýmislegt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“ Körfubolti Fórnaði sér fyrir strákaliðið Sport Segja sigurmark Portúgals ólöglegt: „Stór dómaramistök“ Handbolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Bryðja töflur og spila á öðrum fæti fyrir Dag Handbolti Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Handbolti „Fokking aumingjar“ Körfubolti Datt af hestbaki og er á batavegi: „Er rétt að skríða saman“ Körfubolti Enn bætast við feitir bitar: „Viss um að Tindastóll hugsar þetta öðruvísi núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: ÍR - Álftanes | ÍR-ingar sjóðheitir Í beinni: Valur - Njarðvík | Tvö lið á skriði Í beinni: Höttur - Tindastóll | Lið á gjörólíkum stað Lokaúrslit EuroLeague fara ekki fram í Evrópu GAZ-leikur kvöldsins: „Þið skuldið!“ Datt af hestbaki og er á batavegi: „Er rétt að skríða saman“ Yfirmaðurinn vill stytta leiki í NBA Enn bætast við feitir bitar: „Viss um að Tindastóll hugsar þetta öðruvísi núna“ Ýmislegt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“ „Markmiðið mitt er að enginn vill mæta okkur í fyrstu umferð úrslitakeppninnar“ Sóknarleikur í fyrirrúmi þegar Njarðvík lagði Hamar/Þór Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Uppgjörið: Haukar - Grindavík 88-80 | Toppliðið endurheimti tveggja stiga forskotið Efast um ákvörðun sína að láta Bronny að spila 26 ár síðan Bandaríkjamaður lék fyrst á Íslandi eftir að hafa spilað í NBA Eignaðist barn á mánudegi og mætti á æfingu á föstudegi „Fokking aumingjar“ Stjarnan hreppti sjóaðan og sigursælan Slóvena Þórskonur eiga von á nýjum leikmanni: „Til að hjálpa okkur að halda þessari sigurgöngu áfram“ Keflavík stakk af á Króknum og heldur sig við toppinn Uppgjörið: Aþena - Þór Ak. 85-95 | Tíundi deildarsigur Þórs í röð Valur ofar eftir æsispennu Íslenska körfuboltalandsliðið mun reyna að komast til Katar 2027 Troðslukóngurinn mætir aftur og gæti tekið met af Jordan NBA leikmenn streyma til Íslands en þessi er sá besti Koma báðir heim og spila með Grindavík í Bónus deildinni Strunsaði út af æfingu og félagið setur hann aftur í milljónabann „Þetta eru allt Keflvíkingar“ „Þeirra langbesta sóknarframmistaða í vetur“ Tap eftir hræðilegan fjórða leikhluta Sjá meira