Bein útsending: Tilkynnt um Nóbelsverðlaun í efnafræði Þórdís Valsdóttir skrifar 4. október 2017 08:30 Jean-Pierre Sauvage, Sir J. Fraser Stoddart og Bernard L. Feringa hlutu verðlaunin á síðasta ári fyrir hönnun og efnasmíði minnstu véla heims eða svokallaðar sameindavélar. Vísir/getty
Fréttamannafundur sænsku Nóbelsnefndarinnar, þar sem tilkynnt verður hver eða hverjir hljóta Nóbelsverðlaun í efnafræði, hefst klukkan 9:45. Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér að neðan. Á síðasta ári hlutu þeir Jean-Pierre Sauvage, Sir J. Fraser Stoddart og Bernard L. Feringa verðlaunin fyrir hönnun og efnasmíði minnstu véla heims eða svokallaðar sameindavélar (e. molecular machines). Efnafræði var eftirlætisgrein Alfreds Nobel, upphafsmanns Nóbelsverðlaunanna. Flestar rannsóknir hans voru á sviði efnafræði. Frá árinu 1901 hafa 175 vísindamenn hlotið verðlaunin í efnafræði. Tilnefningar til verðlaunanna eru ekki gerðar opinberar en á hverju ári eru háværir orðrómar og miklar getgátur um hverjir gætu hlotið verðlaunin. Efnafræðingarnir John Goodenough og Stanley Whittingham eru taldir sigurstranglegir fyrir þróun sína á liþín-jóna-rafhlöðunni. Þeir hafa verið orðaðir við verðlaunin um árabil, en hafa ekki enn hlotið þau. Þriðju Nóbelsverðlaunin sem tilkynnt eru í vikunni Á mánudag hlutu bandarísku vísindamennirnir Jeffrey C. Hall, Micael Robash og Michael W. Young Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir rannsóknir sínar á líkamsklukku manna. Í gær voru síðan Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði veitt. Á morgun mun Nóbelsverðlaunanefndin tilkynna hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Fréttamannafundurinn hefst klukkan 11. Hægt verður að fylgjast með fréttamannafundinum í beinni útsendingu á Vísi.
Nóbelsverðlaun Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira