Theodór Elmar fékk fyrsta landsliðsmarkið sitt í jólagjöf frá FIFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2017 13:30 Theodór Elmar Bjarnason fagnar markinu sem var síðan skráð sjálfsmark í fjórtán mánuði. Vísir/Ernir
Theodór Elmar Bjarnason hefur skorað einu landsliðsmarki meira í dag en hann gerði í gær og það þrátt fyrir að hann hafi ekki spilað landsleik í þessari viku. Síðasti landsleikur hans var 14. nóvember síðastliðinn. Knattspyrnusamband Íslands segir frá því á heimasíðu sinni að markanefnd Alþjóðaknattspyrnusambandsins hafi nú ákveðið að fyrra mark Íslands í sigri á Tyrklandi í undankeppni HM 2018 verði skráð á Theodór Elmar. Markið skoraði Theodór Elmar á Laugardalsvellinum 9. október 2016 eða fyrir 424 dögum síðan. Ísland vann leikinn 2-0 og komu bæði mörkin á lokamínútum fyrri hálfleiks. Fyrra markið kom á 42. mínútu en Alfreð Finnbogason bætti síðan öðru marki við á 44. mínútu. Theodór Elmar Bjarnason átti skot á 42. mínútu af 20 metra færi sem fór af tyrkneska varnarmanninum Omer Toprak og í markið. Þetta fyrra mark Íslands var skráð sem sjálfsmark af FIFA og var þannig skráð í fjórtán mánuði en því hefur nú verið breytt. FIFA skráir nú markið á Theodór Elmar Bjarnason. Í samræmi við það hafa UEFA og KSÍ í kjölfarið breytt sinni skráningu. Markið má sjá hér fyrir neðan.Jóhann Berg Guðmundsson fær líka stoðsendingu skráða á sig en hann átti sendinguna á Theodór Elmar í markinu. Theodór Elmar Bjarnason hefur spilað 38 landsleiki fyrir Ísland en þetta er fyrsta og eina landsliðsmarkið hans.
Fótbolti Íslenski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Sjá meira