Kári Kristján: Mér líður eins og ég sé NBA-stjarna Henry Birgir Gunnarsson í Split skrifar 14. janúar 2018 14:30 Kári tók nokkrar pósur á hóteli landsliðsins í gær. vísir/getty „
Er ég ekki hress og skemmtilegur? Er það ekki oft sagt?“ sagði Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson á hóteli landsliðsins í gær. Í spariskapinu eins og svo oft áður. Hann fékk ekkert að spila i leiknum gegn Svíum en vonast eftir spiltíma gegn Króötum í kvöld. „Það myndi ekkert skemma að fá aðeins að prófa. Arnar minn var að vinna fína vinnu og standa vel í þessum peyjum. Þeir þurftu að hafa fyrir honum.“ Króatísku leikmennirnir eru aðeins stærri en þeir sænsku heilt yfir og ekki ólíklegt að Geir þurfi að henda Heimaklettinum á línuna til þess að berjast við þá. „Það gæti mögulega þurft að grípa til þess ráðs. Þetta eru djöfulsins lurkar. Þessir í miðjublokkinni eru bergrisar. Þeir munu þurfa að ganga út í Aron og verður fróðlegt að sjá hvað þeir gera. Þetta er alltaf helvíti gaman. Maður væri ekki hérna nema maður væri sjúkur í það.“ Strákarnir hafa stundum á stórmótum lent á lélegum hótelum en þeim leiðist ekki lífið á fimm stjörnu hótelinu í Split. „Manni líður eins og NBA-stjörnu. Þetta er alveg yndislegt. Stutt í ströndina og allt til taks,“ segir Kári en enginn hefur enn treyst sér í sjóinn. Það gæti breyst. „Það kemur að því og það verður kannski ekki að hans vilja.“
EM 2018 í handbolta Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Sjá meira