Réttarhöld hafin yfir einum af nánustu ráðgjöfum páfans Birgir Olgeirsson skrifar 4. mars 2018 23:39 George Pell á leið í réttarsal í Ástralíu. Vísir/AFP
Fjármálaráðherra Vatíkansins mætti í réttarsal í Ástralíu í dag þar sem réttað verður yfir honum vegna ásakana um margvísleg kynferðisbrot. Talið er að réttarhöldin muni standa yfir í fjórar vikur en ráðherrann er einn af nánustu ráðgjöfum Frans páfa. Ráðherrann heitir George Pell en Reuters greinir frá því að hann hefði ekkert tjáð sig við fjölmiðla þegar hann gekk inn í dómshúsið í Melbourne. Þar mætti honum fjöldinn allur af fjölmiðlamönnum og mótmælendum. Rannsókn málsins hefur staðið yfir í nokkurn tíma og flugu lögregluþjónar til Rómar árið 2016 til að ræða við Pell. Aldrei áður hefur svo háttsettur maður innan kaþólsku kirkjunnar verið sakaður um brot af þessu tagi. Upplýsingar hafa ekki verið veittar um hvenær brotin voru framin eða hve mörg fórnarlömbin eru. Pell var skipaður fjármálaráðherra Vatíkansins árið 2014 en hann hefur verið sendur í leyfi frá störfum. Páfinn hefur neitað að tjá sig um málið fyrr en dómur hefur fallið. Páfinn hefur áður heitið hörðum aðgerðum gegn kynferðisbrotum presta. Pell hélt blaðamannafund í fyrra þar sem talsmaður hans las upp yfirlýsingu. Í henni kom fram að Pell hefði margsinnis í gegnum árin fordæmt öll kynferðisbrot gegn börnum og að um ófrægingarherferð væri að ræða.
Tengdar fréttir Þriðji æðsti maður Vatíkansins ákærður fyrir kynferðisbrot Ástralski kardínálinn George Pell er sakaður um að hafa brotið af sér margsinnis. 29. júní 2017 06:52 Kerfisbundið barnaníð í Ástralíu Skýrsla upp úr fimm ára rannsókn ástralskrar rannsóknarnefndar birtist í gær. Hún sýnir fram á að alvarlegum brotum hafi verið leyft að viðgangast innan helstu samfélagsstofnana Ástralíu. 16. desember 2017 07:00 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira
Þriðji æðsti maður Vatíkansins ákærður fyrir kynferðisbrot Ástralski kardínálinn George Pell er sakaður um að hafa brotið af sér margsinnis. 29. júní 2017 06:52
Kerfisbundið barnaníð í Ástralíu Skýrsla upp úr fimm ára rannsókn ástralskrar rannsóknarnefndar birtist í gær. Hún sýnir fram á að alvarlegum brotum hafi verið leyft að viðgangast innan helstu samfélagsstofnana Ástralíu. 16. desember 2017 07:00