Breskur doktorsnemi dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir njósnir Atli Ísleifsson skrifar 21. nóvember 2018 13:35 Matthew Hedges með eiginkonu sinni Daniela Tejada. AP
Dómstóll í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur dæmt 31 árs gamlan breskan doktorsnema í lífstíðarfangelsi fyrir njósnir. Matthew Hedges, sem stundað hefur nám í Háskólanum í Durham í Englandi, hafnaði ásökunum og segist hafa verið við rannsóknarvinnu. Hann var handtekinn á flugvellinum í Dubai í maí síðastliðinn. Dómari í Abu Dhabi sagði Hedges hafa njósnað fyrir hönd breskra stjórnvalda, en fjölskylda Hedges segir hann hafa verið dæmdan eftir að hafa skrifað undir falska játningu.Bresk stjórnvöld beita sér Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, og utanríkisráðherrann Jeremy Hunt segjast nú reyna að ná sambandi við stjórnvöld í furstadæmunum vegna málsins. Segist Hunt „mjög sleginn og vonsvikinn“ vegna málsins, að því er fram kemur í frétt BBC. Í yfirlýsingu frá fjölskyldu Hedges var hann yfirheyrður án þess að vera með lögmann sér við hlið, fyrstu sex vikurnar eftir handtöku. Var hann látinn skrifa undir skjal á arabísku þar sem hann reyndist játa sakargiftir. „Matthew kann hvorki að tala né lesa arabísku,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldunni. Lífstíðardómur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum merkir 25 ára fangelsisvist og yrði honum vísað úr landi að lokinni afplánun. Nánar má lesa um málið í frétt BBC.
Bretland Mið-Austurlönd Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira