Börsungar komnir með fimm stiga forskot Anton Ingi Leifsson skrifar 6. janúar 2019 21:30 Suarez og Vidal fagna í kvöld. vísir/getty Barcelona er komið með fimm stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Getafe í kvöld. Lionel Messi kom Barcelona yfir á 20. mínútu og nítján mínútum síðar var það Úrúgvæinn Luis Suarez sem tvöfaldaði forystuna. Getafe náðu þó að minnka muninn fyrir lok fyrri hálfleiks er Jaime Mata skoraði og staðan 2-1 í hálfleik. Ekki urðu mörkin fleiri í síðari hálfleik og Börsungar eru komnir með fimm stiga forskot á toppnum eftir að úrslit umferðarinnar féllu með þeim. Getafe er í sjöunda sætinu með 25 stig, fimmtán stigum á eftir toppliðinu. Spænski boltinn
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti