Vill milljónir í bætur eftir byltu í brekkunni með Gwyneth Paltrow Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. janúar 2019 21:30 Lögfræðingar Gwyneth Paltrow þræta ekki fyrir að slysið hafi átt sér stað. Vísir/Getty
72 ára gamall bandarískur sjóntækjafræðingur hefur lögsótt Hollywood-leikkonuna Gwyneth Paltrow vegna skíðaslyss sem hann varð fyrir árið 2016. Hann sakar leikkonuna um að hafa skíðað á hann og brunað í burtu án þess að athuga með meiðsli hans. Terry Sanderson var ásamt skíðafélögum sínum í Deer Valley skíðamiðstöðinni í Utah-ríki Bandaríkjanna þann 26. febrúar 2016. Washington Post fjallar um lögsóknina en alls krefst Sanderson 3,1 milljón dollara í bætur vegna þess skaða sem hann varð fyrir, um 370 milljóna króna, frá Paltrow, skíðakennara hennar og skíðamiðstöðinni. Sanderson hélt blaðamannafund í gær þar sem hann kynnti efni lögsóknarinnar. Þar lýsti hann atvikinu. „Allt í einu heyrði ég brjálæðislegt öskur, eitthvað sem maður heyrir aldrei í brekkunum,“ en Sanderson er reyndur skíðaiðkandi.Skyndilega hafi einhver klesst harkalega á hann aftan frá en við áreksturinn brotnuðu fjögur rifbein Sanderson auk þess sem hann hlaut talsverða höfuðáverka.Lögfræðingar hennar segja að hann sé sökudólgurinn Craig Ramon, skíðafélagi Sanderson segist hafa orðið vitni að árekstrinum og að að Hollywood-leikkonan Paltrow hafi skíðað beint aftan á Sanderson. Skíðakennari hennar hafi hjálpað Sanderson og Paltrow á fætur eftir að hafa öskrað á Sanderson og sakað hann um að hafa orsakað áreksturinn. Í lögsókninni er því einnig haldið fram að Paltrow hafi ekki athugað með meiðsli Sanderson og síðan skíðað í burtu eftir að hún komst á fætur. Ramon segir að það hafi verið greinilegt að Sanderson hafi verið sárþjáður. Lögfræðingar Sanderson segja hann hlotið áverka á heila og langtímaáhrif þeirra geti falið í sér tap á skammtímaminni, persónuleikabreytingar sem og erfiðleika með að rata, sem réttlæti skaðabótakröfuna. Lögfræðingar á vegum Paltrow þræta ekki fyrir að áreksturinn hafi átt sér stað en segja að það hafi verið Sanderson sem hafi skíðað á hana, en ekki öfugt, því sé lögsóknin fjarstæðukennd.
Bandaríkin Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira