Öll Íslendingaliðin töpuðu Arnar Geir Halldórsson skrifar 24. febrúar 2019 10:30 Lovísa Henningsdóttir. Mynd/@MaristAthletics
Fjórir Íslendingar voru í eldlínunni í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt en öll Íslendingaliðin töpuðu leikjum sínum þrátt fyrir jafna leiki. Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 17 stig og gaf 2 stoðsendingar í naumu tapi Ball State Cardinals gegn Toledo háskólanum en leiknum lauk með eins stigs sigri Toledo, 63-62. Lovísa Henningsdóttir skilaði 19 stigum af bekknum en hún nýtti fimm af sjö þriggja stiga tilraunum sínum í leiknum. Það dugði þó ekki til sigurs því Quinnipiac háskólinn vann öruggan 12 stiga sigur á Marist, 66-78. Valur Orri Valsson spilaði 28 mínútur þrátt fyrir að byrja á bekknum og skoraði á þeim tíma sex stig auk þess að gefa tvær stoðsendingar og taka tvö fráköst þegar lið hans Florida Tech beið lægri hlut fyrir Lynn, 76-71 en framlengingu þurfti til að útkljá leikinn. Í kvennaboltanum mættust sömu lið og þar vann Lynn með minnsta mun, 50-49. Guðlaug Júlíusdóttir spilaði stærstan hluta leiksins og skoraði tvö stig auk þess að vera með þrjá stolna bolta.
Körfubolti NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira