Vilja fresta útgöngu Bretlands úr ESB náist samningar ekki Vésteinn Örn Pétursson skrifar 22. febrúar 2019 23:30 Amber Rudd er einn ráðherranna þriggja sem segjast tilbúnir að fara gegn Theresu May náist ekki samningar við Evrópusambandið. Chris J Ratcliffe/Getty
Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Bretlands hafa hvatt til þess að útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, sem fyrirhuguð er seint í næsta mánuði, verði frestað, samþykki þingið ekki drög að útgöngusamningi við Evrópusambandið. Ráðherrarnir þrír, Greg Clarke, David Gauke og Amber Rudd, sögðu í samtali við Daily Mail að tíminn til samninga væri senn á þrotum og að þau vonuðust eftir tímamótaskrefi í samningaviðræðum við Evrópusambandið sem allra fyrst. Ef ekkert slíkt næðist væru þau tilbúin að fara gegn Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, og kjósa með frestun á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, eða Brexit. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðherrarnir þrír lýsa þessum skoðunum sínum yfir opinberlega. Þremenningarnir telja að ef þingið samþykki ekki samning við Evrópusambandið sé hagsmunum Bretlands betur borgið með því að fresta útgöngu heldur en að „hrynja út úr Evrópusambandinu,“ eins og þau sjálf orðuðu það. Í yfirlýsingu frá Downing-stræti 10 segir að afstaða ráðherranna sé illa geymt leyndarmál. Ráðherrunum var þar sendur tónninn þar sem fullyrt er að May forsætisráðherra vinni nú hörðum höndum að því að gera samning við Evrópusambandið sem geri ríkisstjórninni kleift að standa við það sem lofað var með þjóðaratkvæðagreiðslunni um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu og að þar ættu áherslur allrar ríkisstjórnarinnar að liggja.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira