Sjö stiga forskot Börsunga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2019 19:15 Messi skorar annað mark Barcelona. vísir/getty Barcelona endurheimti sjö stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri á Rayo Vallecano í kvöld. Þetta var þriðji sigur Katalóníuliðsins í röð. Börsungar þurftu að hafa fyrir sigrinum í kvöld gegn liðinu í næstneðsta sæti deildarinnar. Rayo Vallecano komst yfir á 24. mínútu þegar Raúl de Tomás skoraði sitt ellefta deildarmark í vetur. Á 38. mínútu jafnaði Gerard Pique metin með skalla eftir aukaspyrnu Lionel Messi. Staðan er 1-1 í hálfleik. Á 50. mínútu var brotið á portúgalska bakverðinum Nelson Semedo innan vítateigs. Messi fór á punktinn og skoraði af öryggi. Argentínumaðurinn er langmarkahæstur í spænsku deildinni með 26 mörk. Þegar átta mínútur voru til leiksloka skoraði Luis Suárez þriðja mark heimamanna þegar hann batt endahnútinn á frábæra sókn þeirra. Lokatölur 3-1, Barcelona í vil. Spænski boltinn
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti