HIV-laus í átján mánuði eftir stofnfrumumeðferð Kjartan Kjartansson skrifar 5. mars 2019 10:27 HIV-próf. Myndin er úr safni. Vísir/EPA
Breskur karlmaður sem greindist með HIV-veiruna árið 2003 hefur verið laus við hana í átján mánuði eftir að hann fór í stofnfrumumeðferð. Þetta er aðeins annað dæmið um að HIV fari í sóttarhlé en læknar segja of snemmt af fullyrða að maðurinn sé læknaður af sjúkdómnum. Auk HIV-smitsins greindist maðurinn með Hodgkins-eitilfrumukrabbamein árið 2012. Hann gekkst undir lyfjameðferð vegna krabbameinsins en í hann voru einnig græddar stofnfrumur úr sjúklingi sem er ónæmur fyrir HIV-veirunni. Í kjölfarið rénaði bæði krabbameinið og veiran. Maðurinn hefur síðan hætt að taka inn HIV-lyf, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Læknarnir segja að þessi meðferð sé ekki raunhæf fyrir flesta HIV-sjúklinga en vonast til þess að hún geti hjálpað til við að finna lækningu við sjúkdómnum. Þeir hafa skrifað grein um meðferð mannsins í vísindaritið Nature. Aðeins eitt annað dæmi er um HIV-veiran fari í sóttarhlé. Fyrir tíu árum fór sjúkdómurinn í rénun í karlmanni í Berlín eftir að hann fékk beinmerg úr sjúklingi sem var ónæmur fyrir veirunni.
Heilbrigðismál Vísindi Mest lesið Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Bjarni fundaði með Guterres Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Fleiri fréttir Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Sjá meira