Einn af risunum í ástralskri stjórnmálasögu er látinn Atli Ísleifsson skrifar 16. maí 2019 23:41 Bob Hawke sló heimsmet í bjórdrykkju á námsárum sínum. Getty
Bob Hawke, einn af risunum í ástralskri stjórnmálasögu, er látinn, 89 ára að aldri. Hann gegndi embætti forsætisráðherra landsins í níu ár, frá 1983 til 1991. Hawke tók við formennsku í Verkamannaflokknum árið 1983 og vann flokkurinn óvæntan sigur í þingkosningunum sama ár. Hawke naut mikilla vinsælda í landinu og leiddi flokk sinn til sigurs í næstu þremur þingkosningum. Er hann sá leiðtogi Verkamannaflokksins sem lengst hefur setið í embætti forsætisráðherra. „Ástralska þjóðin elskaði Bob Hawke þar sem hún vissi að hann elskaði hana. Sú var raunin allt til loka,“ sagði Bill Shorten, leiðtogi Verkamannaflokksins í yfirlýsingu í morgun. Þrátt fyrir að njóta mikilla vinsælda var Bob Hawke ekki óumdeildur. Hann varð þekktur fyrir að slá heimsmet þegar hann náði að klára 2,5 glös af bjór (1,4 lítrar), eða „yard af bjór“, á ellefu sekúndum. Þá skildi hann við konu sína árið 1995 og gekk þá að eiga ástkonu sína Blanche d'Alpuget. Bob Hawke sagði skilið við stjórnmálin árið 1992, ári eftir að hann beið lægri hlut fyrir Paul Keating sem skoraði hann á hólm í leiðtogakjöri innan Verkamannaflokksins.
Andlát Ástralía Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira