Fékk máva í hreyflana Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. ágúst 2019 09:13 Vélin var á leið frá Moskvu til Krímskaga þegar hún flaug inn í mávahóp. EPA/SERGEI ILNITSKY
Tuttugu og þrír farþegar rússneskrar farþegaþotu eru slasaðir eftir að vélin flaug inn í fuglasverm og þurfti að nauðlenda á engi nærri Moskvu. Að sögn breska ríkisútvarpsins þurftu flugmenn að framkvæma lendinguna án þess að styðjast við hreyfla eða lendingarbúnað vélarinnar. Airbus 321-vél flugfélagsins Ural Airlines var á leið frá Moskvu til Simferopol á Krímskaga þegar hún hafnaði á mávahópi, skömmu eftir flugtak. Talið er að fuglarnir hafi sogast inn í hreyflana með þeim afleiðingum að hreyflarnir skemmdust. Talið er að þeir séu með öllu ónothæfir og ólíklegt þykir að vélinni verði flogið aftur. Alls voru 233 farþegar um borð og særðust á þriðja tug sem fyrr segir, þar af voru fimm börn. Hin slösuðu voru flutt á sjúkrahús en farþegarnir eru sagðir hafa særst mismikið við lendinguna, sumir alvarlega. Aðrir farþegar voru fluttir aftur á flugvöllinn þaðan sem þeim verður reynt að koma á áfangastað með öðrum vélum. Rússnesk flugmálayfirvöld eru með málið til rannsóknar en þarlendir miðlar eru þegar farnir að tala um nauðlendinguna sem „kraftaverkið yfir Ramenskoye,“ sem er bæjarfélag suðaustan af Moskvu þar sem vélin nauðlenti.
Fréttir af flugi Rússland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira