Bílaleigan var með Toyota-jepplinginn á sinni könnu, þann sem ekið var inn um afturrúðu Kia-fólksbíls á ellefta tímanum í morgun eftir um 200 metra ferðalag - sem þó er ekki stysta tjónlausa vegalengd sem Sævar man eftir.
Hann segir í samtali við Vísi að jepplingur bílaleigunnar sé töluvert skemmdur eftir uppákomuna; stýrisendi og spyrna séu ónýt auk þess sem töluvert „nudd“ hafi orðið á lakki bílsins. Tryggingamálin séu núna í skoðun, hann sé þannig ekki viss um það á þessari stundu hvort ferðamennirnir sem leigðu bílinn hafi keypt sér viðbótartryggingu.
Sjá einnig: Beint af bílaleigunni og upp á bíl
Fyrst og fremst sé hann þó ánægður með að engin slys hafi orðið á fólki.

„Hafi viðskiptavinur ekki fjárfest í viðbótartryggingum er hann rukkaður þá upphæð þar til ljóst er hvert eiginlegt tjón er. Oftar en ekki eru þó viðskiptavinir okkar með viðbótatryggingar sem lækka sjálfsábyrgðina og endar þá umframkostnaðurinn á bílaleigunni. Þá eru auðvitað ýmis tjón undanþegin kaskótryggingum, s.s. undirvagnstjón, vatnstjón og svo framvegis.“
Hann segist þó ekki búast við öðru en að eigendur hinna bílanna tveggja, fólksbíla af gerðunum Kia og BMW, fái sitt greitt frá tryggingunum.
Þrátt fyrir að þetta sé með sérstakari tilfellum sem Sævar man eftir minnir hann á að óhöppin geti alltaf átt sér stað.
Þegar viðskiptavinir komast í hann krappan sé það yfirleitt leyst með því að hann greiðir sjálfsábyrgðina á bílnum og honum færður nýr bíll um leið.
Fyrir allar útleigur sé gengið úr skugga um að ökumennirnir séu með gild ökuskírteini - „þó erfitt sé að vita hversu færir ökumenn eru í raun og veru en menn séu auðvitað jafn misjafnir bakvið stýrið og þeir eru margir en ætla má að yfirgnæfandi meirihluti viðskiptavina okkar séu fínir ökumenn enda tjón ansi fátíð,“ segir Sævar.
Óhappið í morgun sé þannig ekkert einsdæmi. „Þegar við vorum með útibú á Klapparstíg á árum áður tókst einum að keyra um 70 til 100 metra áður en hann var búinn að aka á kyrrstæðan Porsche Cayenne,“ segir Sævar.
„Sá ökumaður var svo öruggur með sig að hann sagðist ekki þurfa að kaupa neina viðbótartryggingu á bílinn. Eftir áreksturinn tók hann hins vegar enga áhættu og ákvað að bæta við tryggingu á næsta bíl sem hann leigði.“