Fresta aðgerðum vegna manneklu af völdum veirunnar á Landspítalanum Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2020 13:31 Engar valaðgerðir fara fram í Fossvogi fram yfir helgi vegna manneklu sem er tilkomin vegna kórónuveirunnar. Vísir/vilhelm
Ákveðið hefur verið að fresta öllum valaðgerðum á Landspítalanum í Fossvogi fram yfir helgi vegna manneklu sem er til komin vegna fjölda starfsmanna sem eru í einangrun eða sóttkví vegna kórónuveirunnar. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, staðfestir að öllum valaðgerðum verði frestað fram yfir helgi. Þær telji tugi. Áfram verði gerðar bráðaaðgerðir og þá halda aðgerðir á Hringbraut og á kvennadeild áfram. „Það kemur til vegna þess að við erum með mikið af starfsfólki sem þarf til þeirra aðgerða í sóttkví eða einangrun,“ segir hún við Vísi. Ekki liggur fyrir hvort að aðgerðir geti hafist strax á mánudag aftur. Anna Sigrún segir að starfsfólk komi og fari nú úr sóttkví og staðan breytist hratt. „Við erum auðvitað að vonast til að fá starfsmenn til baka og þá getum við startað starfsemi aftur,“ segir hún. Fjórtán aðgerðum var frestað á Landspítalanum vegna sóttkvíar eða einangrunar starfsmanna í gær. Ellefu starfsmenn eru í einangrun og 92 í sóttkví samkvæmt upplýsingum frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd spítalans. Anna Sigrún segir að allt hafi sjötíu aðgerðir verið felldar niður í Fossvogi í vikunni. Sjúkrahúsið þar keyri nú á um þriðjungi venjulegrar getu. Alla jafna séu gerðar um 25 aðgerðir á dag en um þessar mundir séu þær níu til tíu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Wuhan-veiran Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira