Stolið Bataclan-verk Banksy fannst á ítölskum bóndabæ Atli Ísleifsson skrifar 11. júní 2020 07:53 Hurðinni var stolið í janúar 2019. Getty
Lögregla á Ítalíu hefur fundið hurð neyðarútgangs tónleikastaðarins Bataclan í París með verki Banksy á ítölskum bóndabæ. Hurðinni var stolið á síðasta ári. La Repubblica segir lögreglu hafa fundið hurðina á bóndabæ í Abbruzzo, austur af Róm, og að lögregla muni greinar frekar á fundinum síðar í dag. Verk breska götulistamannsins dularfulla var málað á hurðina en um er að ræða mynd af konu með sjal yfir höfðinu. Níutíu tónleikagestir Bataclan voru drepnir í hryðjuverkaárásinni í frönsku höfuðborginni að kvöldi 15. nóvember 2015. Réðst þar hópur manna inn á staðinn þar sem sveitin Eagles of Death Metal tróð upp. Alls dóu 130 manns í árásunum í borginni umrætt kvöld. Hurðin hvarf sporlaust í janúar á síðasta ári eftir að hópur grímuklæddra manna búinn slípirokkum losaði hurðina, kom henni fyrir í sendiferðabíl og ók á brott. Stuttu eftir að hurðinni var stolið, eða í apríl 2019, var öðru Banksy-verki stolið í frönsku höfuðborginni en þá var skilti með málverki af grímuklæddri rottu stolið þar sem það var til sýnis fyrir utan menningarmiðstöðina Centre Pompidou.
Myndlist Frakkland Ítalía Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira