Segja Jóhann Karl njóta lífsins á lúxushóteli í Abú Dabí Andri Eysteinsson skrifar 7. ágúst 2020 15:15 Jóhann Karl flúði Spán í vikunni. Getty/ CDMeR
Fyrrverrandi konungur Spánar hefur notið lífsins á einu af glæsilegustu hótelum heims síðan að hann flúði heimalandið vegna fjársvikamáls sem er til rannsóknar á Spáni. Spænski miðillinn ABC greinir frá því að hinn 82 ára gamli Jóhann Karl hafi innritað sig inn á Emirates Palace Hótelið í Abú Dabí, höfuðborg Sameinuðu arabísku furstadæmanna á mánudagskvöld. Sama kvöld var bréf sem hann sendi á son sinn Filippus VI. Spánarkonung gert opinbert. Talið hefur verið að Jóhann Karl hafi flogið til Dóminíkanska lýðveldisins með viðkomu í Portúgal en ABC segir einkaþotu konungs hafa flogið frá Vigo til Arabíuskagans um hádegisbilið á mánudeginum. Um borð hafi verið gamli konungurinn og fjórir lífverðir hans. Flugvélin hafi lent á Al Bateen flugvellinum þar sem að þyrla beið Jóhanns Karls og flaug hann þaðan á Emirates Palace hótelið. Sky greinir frá því að yfirvöld í Dóminíkanska lýðveldinu og í Portúgal hafi ekki vitað til þess að konungurinn hafi komið til landanna. Stjórnvöld í Furstadæmunum hafa ekki viljað tjá sig um málið og sama má segja um starfsfólk hótelsins, sem raunar er í eigu stjórnvalda.
Sameinuðu arabísku furstadæmin Spánn Kóngafólk Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira