Leiðtogaráðið með neyðarfund um Hvíta-Rússland Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 17. ágúst 2020 19:00 Lúkasjenko hefur unnið allar forsetakosningar í sögu sjálfstæðs Hvíta-Rússlands AP/Nikolai Petrov
Leiðtogaráð Evrópusambandsins var boðað á neyðarfund í dag vegna ástandsins í Hvíta-Rússlandi. Fjöldamótmæli gegn forseta landsins standa enn yfir eftir umdeildar forsetakosningar. Charles Michel, forseti leiðtogaráðsins, var harðorður í garð hvítrússneskra stjórnvalda í dag og sagði ofbeldi gegn mótmælendum óafsakanlegt. Fundað verður um stöðuna á miðvikudaginn. Samkvæmt landskjörstjórn náði Alexander Lúkasjenko forseti endurkjöri í kosningunum, sem fóru fram fyrir rúmri viku. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin hafa sagst efast um niðurstöðurnar og gagnrýnt framkvæmd kosninganna harðlega. Fjöldamótmæli hófust í raun um leið og útgönguspár lágu fyrir og hafa staðið yfir allar götur síðan. Þúsundir hafa verið handtekin og margir þeirra sem hafa verið leystir úr haldi segjast hafa verið pyntaðir. Lúkasjenko forseti lagði leið sína í dráttarvélaverksmiðju í morgun til að reyna að afla sér stuðnings verkamanna og voru mótmælendur mættir að taka á móti honum. Þá greina hvítrússneskir fjölmiðlar frá því að forsetinn hafi sagt verkamönnum að það verði ekki aðrar forsetakosningar fyrr en eftir að hann deyr.
Hvíta-Rússland Evrópusambandið Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira