Hvað vitum við um Samherja? Arnar Atlason skrifar 26. ágúst 2020 07:30 Samherji er næst stærsta útgerðarfélag landsins með um 7% kvótann. Samherja blokkin svokallaða sem í eru félög nátengd Samherja eignarböndum er með um 17%. Félagið hefur frá stofnun 1983 vaxið innan kvótakerfisins, sem komið var á um sama leiti. Umsvif þess í dag eru þó ekki síður mikil erlendis en áætla má að liðlega 50% af umsvifum félagsins sé fyrir utan landsteinana. Samherji er með höfuðstöðvar á Akureyri. Fyrirtækið er einnig með fjölda starfstöðva um allan heim. Því hefur verið gerð ítarlega skil og situr þar eftir efst í huga myndin af öllum skrifstofum Samherja á Kýpur, þar sem engin sala sjávarafurða fer fram. Sjávarútvegs og Landbúnaðar ráðherra Kristján Þór Júlíusson tengist Þorsteini Má vinaböndum. Hann hefur líst því yfir að hann muni stíga til hliðar í málum á þingi er beinast muni að Samherja. Kristján Þór var stjórnarformaður Samherja. Samherji er samþætt félag (verticly integrated). Það þýðir að félagið heldur á keðju fyrirtækja eða deilda sem eiga viðskipti sín á milli, innanlands og milli landa. Fyrirtækin eru allt frá því að vera útgerðarfélög hér heima til vinnslu og sölufyrirtækja innanlands. Sömu sögu má segja erlendis. Þessi tegund fyrirtækja hefur ósjaldan legið undir gagnrýni fyrir ógagnsæi í verðlagningu. Freistnivandi vegna möguleika á óeðlilegri milliverðlagningu (transfer pricing) er mikill. Flest mál sem beinst hafa að Samherja á undanförnum árum innanlands og erlendis fjalla um þetta eðli reksturs Samherja. Óeðlilega lá milliverðlagning getur í tilfelli Samherja leitt til lægri launa sjómanna, lægri hafnargjalda, lægra veiðigjalds og síðast en ekki síst til lægri tekna Ríkissjóðs. Gagnrýni og eftirlit getur því ekki talist óeðlileg þegar um jafn háar upphæðir er að ræða eins og raun ber vitni. Mál Seðlabanka Íslands á hendur Samherja var einmitt þess eðlis. Frá Verðlagsstofu skiptaverðs komu tölur sem sýndu óeðlilega lágt verð. “Í ljós kemur að Samherji hf. er að greiða lægstu verðin en það er eina fyrirtækið sem er að selja karfa í eigin vinnslu í Þýskalandi það er um að ræða beina sölu” (úr vinnsukjali Verðlagsstofu Skiptaverðs) Samherji var sýknaður af lagatæknilegum ástæðum en verðlagningin ekki tekin til umfjöllunar. Eftir stendur að verðið var óeðlilega lágt og selt milli deilda í samþættu félagi. Eigendur Samherja (Þorsteinn og Helga) voru sektuð fyrir brot á skilaskyldu laga um gjaldeyrismál í kjölfar bankahrunsins. Sektina þurfti ríkissjóður svo að endurgreiða á árinu 2019 vegna mistaka sem verð voru við brot á setningu laga um gjaldeyrismál. Mál Samherja í Namibíu snýr að sama skapi að verðlagningu, skattaundanskotum og mútum. Mál það er í farvegi og verður fróðlegt að sjá niðurstöðu eða hvort aftur verði komist hjá því að fá niðurstöðu ! Á Íslandi er fiskur seldur tvennu móti. Annarsvegar gegn hæsta verði á Fiskmörkuðum landsins. Hinsvegar með samningsverði milli aðila, sem í sumum tilfellum er sami aðilinn eins og í tilfelli Samherja. Verð í þannig viðskiptum er samningsverð. Verðlagsstofa Skiptaverð sem staðsett er á Akureyri gefur út svokallað viðmiðunarverð sem mjög gjarnan er miðað við. Verð þetta er að lágmarki 25 % lægra en meðalverð á Fiskmörkuðum (vegna síðustu kjarasamninga sjómanna). Jafnframt hefur verið sýnt fram á tilfelli þar sem verðið hefur verið nálægt 50% lægra. Kerfi þetta ýtir undir umrædda óeðlilega milliverðlagningu og hyglir þeim útgerðum sem ekki selja á opnum markaði. Þær greiða vegna þessa, lægri laun, lægri aflagjöld og vegna afleiddra áhrifa lægri veiðigjöld. Samkeppniseftirlitið gaf út álit árið 2012 nr. 2/2012 og beindi í því tilmælum til ráðherra: “ Samkeppniseftirlitið vill benda atvinnuvega og nýsköpunarráðherra og öðrum stjórnvöldum á að það kunni að vera hvatar hjá lóðrétt samþættum útgerðarfyrirtækjum sem valda því að þau gefi upp sem lægst verð í innri viðskiptum milli vinnslu- og útgerðarhluta fyrirtækjanna.” Í sama áliti kom SE með fjórar tillögur í þeirri fyrstu segir meðal annars: “Verðlagning í innri viðskiptum á milli útgerðar- og fiskvinnsluhluta lóðrétt samþættrar útgerðar verði eins og um viðskipti milli tveggja óskyldra aðila sé að ræða” SE fjallaði jafnframt um Verðlagsstofu í sama áliti: “Samkeppniseftirlitið vill benda ráðherra á að það fyrirkomulag laga um Verðlagsstofu skiptaverðs, sem fjallað var um hér að framan, að hagsmunasamtök útvegsmanna sem eru keppinautar, ræði um og ákveði verð sem síðan er notast við í innri viðskiptum útgerða er óheppilegt í samkeppnislegu tilliti.”, “Til að koma í veg fyrir þær samkeppnishömlur sem af þessu fyrirkomulagi leiða væri eðlilegast að útvegsmenn kæmu ekki með benum hætti að ákvörðun þessa verðs (verðlagsstofuverðs)” Það sem við vitum um Samherja er að þar eru við stjórnvölin; framsæknir, áræðnir stjórnendur sem víla fátt fyrir sér. Þetta eru aðilar sem hafa sýnt af sér afburða hæfni í útgerð. Haslað sér völl á ýmsum sviðum og séð tækifæri þar sem aðrir sjá hindranir. Fyrsta skylda þeirra eins og annarra stjórnenda er að hámarka afkomu félagsins, þeirri skildu hafa þeir sinnt af kostgæfni. Fyrsta setning fyrstu greinar laga um stjórn fiskveiða hljómar á þennan veg. „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.“ Viðfangsefni stjórnvalda er ekki að koma böndum yfir félagið eða hindra framgang þess. Viðfangsefnið er að markmið Samherja líkt og annarra félaga í íslenskum sjávarútvegi fari saman við markmið þjóðarinnar. Sem er að stefna að því að hámarka virði auðlinda okkar í hafinu, þjóðinni til hagsbóta. Markmiðum þeim verður ekki mætt ef samkeppnislög eru virt að vettugi. Þeim verður ekki mætt ef rekstur stærstu félaga landsins er yfir gagnrýni stjórnvalda hafin. Þeim verður og ekki mætt ef þau fá að skrifa söguna sjálf. Höfundur er formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Arnar Atlason Mest lesið Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun