Á þriðja tug fórst með herflugvél í Úkraínu Kjartan Kjartansson skrifar 26. september 2020 11:31 Björgunarmenn við brak herflugvélarinnar í Kharkiv. Vísir/EPA
Liðsforingjaefni úr úkraínska flughernum voru meirihluti þeirra að minnsta kosti 25 sem fórust þegar herflugvél brotlenti nærri borginni Kharkiv í austurhluta Úkraínu í gærkvöldi. Orsakir slyssins liggja ekki fyrir en ekkert bendir til þess að þau tengist hernaðarátökum í austanverðu landinu. Flugvélin var af gerðinni Antonov-26. Bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að liðsforingjaefnin hafi ekki stýrt vélinni þegar hún hrapaði. Tuttugu liðsforingjaefni frá háskóla flughersins í Kharkiv voru um borð í vélinni. Átján þeirra fórust en tveir eru alvarlega slasaðir, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Í tilkynningu frá öryggisþjónustu Úkraínu kom fram að flugstjóri vélarinnar hefði tilkynnt um að annar hreyfill hennar hefði bilað og óskað eftir leyfi til nauðlendingar. Vélin hrapaði aðeins sjö mínútum síðar. Slysið varð um tvo kílómetra frá Tjúhuiv-herflugvellinum. Hann er um hundrað kílómetrum frá vígstöðvunum í Austur-Úkraínu þar sem stjórnarhermenn glíma við uppreisnarmenn hliðholla Rússlandi. A military transport plane carrying air-force cadets crashed in northeastern Ukraine, killing at least 26 people on board https://t.co/WBBlxf7jhb pic.twitter.com/qznXbCCPaf— Reuters (@Reuters) September 26, 2020
Úkraína Fréttir af flugi Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira