Skoðun

Umhverfismál í öndvegi hjá Sjálfstæðisflokknum

Svavar Halldórsson skrifar

Blessunarlega bendir margt til þess að umhverfismál verði ofarlega í baráttunni fyrir alþingiskosningarnar næsta haust. Það er einlæg ósk undirritaðs að svo verði, enda löngu tímabært að setja umhverfið á oddinn og hefja málaflokkinn til vegs og virðingar. Það er órjúfanlegur hluti af eðli stjórnmála og stjórnmálaflokka að aðlaga stefnu sína að nýrri tækni, áherslum og breyttum aðstæðum í samfélaginu. Þetta gera flokkar á landsfundum sínum og oft setja þeir einnig fram sérstaka stefnuskrá fyrir kosningar með helstu áherslumálum á hverjum tíma.

Hringrásarlandbúnaður

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi leitað leiða til að til að bæta íslenska landbúnaðarkerfið með það fyrir augum að auka verðmætasköpun og nýta auðlindir, fjárfestingu, hugvit og mannauð. Þessum markmiðum má öllum ná með því að tvinna saman tvo málaflokka, þ.e.a.s. landbúnaðar- og umhverfismál, með miklu beinni hætti en nú er. Úr verði hringrásarlandbúnaður. Þannig megi greiða fyrir aukinni verðmætasköpun á grundvelli sjálfbærni, sérstöðu og velferðar. Umhverfið, bændur og neytendur muni njóta.

Opinber stuðningur bundinn við umhverfismælikvarða

Í grein sem birtist nýlega í Bændablaðinu gerði undirritaður nokkuð ítarlega grein fyrir þessum hugmyndum. Greinina er einnig að finna á vefsíðunni www.svavar.info. Hringrásarstefnan í landbúnaði var líka nýlega kynnt fyrir þingflokki Sjálfstæðisflokksins og þeim málefnanefndum sem sinna stefnumótun flokksins í atvinnu- og umhverfismálum, en undirritaður á sæti í báðum. Kjarni hennar er í stuttu máli sá að opinber stuðningur við bændur verður bundinn við sjálfbærni- og umhverfismælikvarða. Með öðrum orðum, þeir bændur og aðrir matvælaframleiðendur sem uppfylla tiltekin umhverfisskilyrði fá opinberan fjárhagslegan stuðning, aðrir ekki.

Verðmætasköpun og hreinleiki

Slík stefna er mjög í anda klassískrar sjálfstæðisstefnu, en svarar um leið kalli tímans. Verið er að taka skref til aukinnar verðmætasköpunar og hreinleika, en í burtu frá verksmiðjubúskap og eiturefnanotkun. Stefnan hvílir á þeirri trú að almenningur sé tilbúinn að styðja við bakið á

bændum og íslenskri matvælaframleiðslu, ef á móti séu gerðar skýrar kröfur á bændur um að þeir fylgi ströngustu reglum um dýravelferð, hreinleika og umhverfismál.

Ný umhverfis- og landbúnaðarstefna Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi verið forystuafl í íslensku þjóðlífi og um leið tryggt pólitískan stöðugleika sem hryggjarstykkið í innlendum stjórnmálum. Lykillinn er farsæl stefna sem byggir á blöndu af djörfung og íhaldssemi, þar sem leiðarljósið er að öflugt atvinnulíf sé undirstaða velferðar og samhjálpar. Þannig hafa áherslur í einstökum málaflokkum þróast í tímans rás þótt grunnstef Sjálfstæðisstefnunnar sé ávallt það sama. Sífellt aukinn áhugi er nú á umhverfismálum innan flokksins, sem er mjög í anda þess sem stofnendur og fyrstu forystumenn hans lögðu upp með fyrir nærri öld.

Boltinn er hjá Landsfundarfulltrúum

Brátt líður að Landsfundi Sjálfstæðisflokksins og kosningar eru í nánd. Mikilvægt er að flokkurinn mæti þar til leiks með vandaða, vel ígrundaða og framsækna stefnu í umhverfis- og landbúnaðarmálum. Þannig getur flokkurinn náð enn betur til yngri aldurshópa, áhugafólks um umhverfið og þeirra sem telja að skynsamleg uppbygging innlendra atvinnuvega sé farsælt veganesti til framtíðar. Hér hefur verið tæpt á því í örfáum orðum á hverju er skynsamlegt að slík stefna sé grundvölluð. Það er mikilvægt að umhverfismál verði í öndvegi hjá Sjálfstæðisflokknum í komandi kosningabaráttu. Fyrir því er mikill hljómgrunnur bæði hjá flokksmönnum og kjósendum.

Höfundur er sérfræðingur í matarmenningu, stefnumótun og markaðsmálum.




Skoðun

Sjá meira


×