Verjandinn segir Gunnar Jóhann í skýjunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. mars 2021 14:11 Gunnar Jóhann Gunnarsson var dæmdur í þrettán ára fangelsi í héraði fyrir að hafa banað hálfbróður sínum í Mehamn í apríl 2019. Dómurinn var styttur í fimm ár fyrir áfrýjunardómstól. Saksóknari íhugar að fara með málið fyrir Hæstarétt. Gunnar Jóhann Gunnarsson mun vera í skýjunum yfir að dómur yfir honum fyrir að hafa banað hálfbróður sínum hafi verið styttur úr þrettán árum í fimm. Þetta hefur norski vefurinn iFinnmark eftir verjanda hans. „
Þetta er léttir eftir alla sorgina að hafa misst bróður sinn. Hann upplifir nú að honum sé trúað að um hræðilegt óhapp hafi verið að ræða. Hann viðurkenndi mikið gáleysi en þetta er niðurstaða sem hann getur lifað við,“ sagði Brynjar Meling, verjandi Gunnars Jóhanns, í samtali við iFinnmark. Naumur meirihluti áfrýjunardómstóls í Noregi komst í gær að þeirri niðurstöðu að þrettán ára fangelsisdómur yfir Gunnari Jóhanni skyldi mildaður í fimm ára dóm. Gunnar hefur þegar verið í tvö ár í gæsluvarðhaldi og getur sótt um reynslulausn eftir rúmt ár. Saksóknari hefur til skoðunar hvort dómnum í gær verði áfrýjað til Hæstaréttar. Forsaga málsins Það var í apríl 2019 sem Gunnar Jóhann læsti sig inni á heimili Gísla Þórs Þórarinssonar hálfbróður síns og beið eftir honum. Þegar Gísli kom heim kom til átaka sem lauk með því að tveimur skotum úr byssu Gunnars Jóhanns. Annað skotið fór í Gísla en hitt í stofuvegginn. Ástæða ágreiningsins var sú að Gísli Þór var farinn að slá sér upp með barnsmóður Gunnars Jóhanns. Gunnar Jóhann hefur frá upphafi haldið því fram að um slysaskot væri að ræða og aldrei verið ásetningur hans að bana bróður sínum. Saksóknari ákærði hann fyrir manndráp og fékk Gunnar þrettán ára dóm í héraði á þeirri forsendum. Áfrýjunardómstóll komst svo að þeirri niðurstöðu í gær að um manndráp af gáleysi hefði verið að ræða. Situr sáttur af sér dóminn Björn Andre Gulstad, einn verjanda Gunnars Jóhanns, bendir á að niðurstaðan sé í samræmi við frásögn Gunnars Jóhanns frá upphafi. „Skjólstæðingur minn er í skýjunum yfir að frásögn hans frá fyrsta degi hafi að lokum verið tekin trúarleg. Hann hefur alltaf haldið því fram að skotið hafi hlaupið af fyrir slysni í átökum, ekki hafi verið um viljaverk að ræða,“ segir Guldstad. „Hann hefur séð eftir viðbrögðum sínum og að hann hafi ýtt undir hættuna á að slys gæti gerst. Hann hefur sagt að um slys hafi verið að ræða en hefur viljað axla ábyrgð á atvikinu. Hann situr sáttur af sér fangelsisdóm fyrir aðild sína að slysinu.“ Rúmt ár í beiðni um reynslulausn Guldstad segir Gunnar Jóhann líta svo á að hann hafi verið sýknaður af manndrápi. „Nú getur líf skjólstæðings míns haldið áfram, fyrir utan að hann mun aldrei gleyma slysinu sem varð. Það mun fylgja honum út lífið sem og söknuður bróður sem hann elskaði af öllu hjarta.“ Gunnar Jóhann hefur setið inni 677 daga í gæsluvarðhaldi sem svarar til tæplega tveggja ára. Gunnar getur sótt um reynslulausn þegar hann hefur setið af sér tvo þriðju dómsins. Refsiramminn fyrir manndráp af gáleysi í Noregi er sex ára fangelsi. Þar sem Gunnar játaði var dómurinn styttur um fimmtán prósent og niðurstaðan fimm ára fangelsi. Skaðabótakröfu hafnað Mettte Yvonne Larsen, lögmaður sem gætti hagsmuna barnsmóður Gunnars Jóhanns og kærustu Gísla Þórs hélt uppi kröfu um skaðabætur til hennar enda hefði hún missti fyrirvinnu sína, Gísla Þór. Byggði hún á því að í raun hefðu þau Gísli Þór hafið sambúð þegar atvikið varð. Áfrýjunardómstóllinn féllst ekki á þá kröfu og sýknaði Gunnar Jóhann af skaðabótakröfunni. „Við erum ánægðir að einkabótakröfunni hafi verið hafnað,“ segir Brynjar Meling, verjandi Gunnars Jóhanns, við iFinnmark.
Manndráp í Mehamn Noregur Íslendingar erlendis Tengdar fréttir „Ég varð að halda andliti barnanna vegna“ „Tíminn vinnur almennt með okkur, en þetta var svakalega erfitt sérstaklega fyrsta árið eftir að þetta gerðist. Ég varð að halda andliti barnanna vegna. Þau hafa misst tvær mikilvægar manneskjur úr lífi sínu, og ég stóð eftir ein.“ 26. febrúar 2021 11:04 Áfrýjunarmeðferð í máli Gunnars Jóhanns hófst í morgun Málflutningur í máli Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem dæmdur var í þrettán ára fangelsi fyrir að hafa banað bróður sínum í bænum Mehamn í Norður-Noregi í apríl 2019, hófst í lögmannsrétti Hálogalands í Tromsø í morgun. Verjendur Gunnars Jóhanns áfrýjuðu dómnum yfir skjólstæðingi sínum sem féll í október síðastliðnum. 22. febrúar 2021 11:00 Frægur lögfræðingur til liðs við lögmannateymi Gunnars Jóhanns Lögmenn Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem hlaut í október síðastliðinn þrettán ára fangelsisdóm fyrir að hafa banað bróður sínum í norska bænum Mehamn í apríl 2019, hafa fengið lögmanninn Brynjar Meling til liðs við sig. Meling er vel þekktur í Noregi, fyrst og fremst fyrir að vera lögmaður Mulla Krekar, dæmds hryðjuverkamanns. 5. janúar 2021 16:01 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
„Ég varð að halda andliti barnanna vegna“ „Tíminn vinnur almennt með okkur, en þetta var svakalega erfitt sérstaklega fyrsta árið eftir að þetta gerðist. Ég varð að halda andliti barnanna vegna. Þau hafa misst tvær mikilvægar manneskjur úr lífi sínu, og ég stóð eftir ein.“ 26. febrúar 2021 11:04
Áfrýjunarmeðferð í máli Gunnars Jóhanns hófst í morgun Málflutningur í máli Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem dæmdur var í þrettán ára fangelsi fyrir að hafa banað bróður sínum í bænum Mehamn í Norður-Noregi í apríl 2019, hófst í lögmannsrétti Hálogalands í Tromsø í morgun. Verjendur Gunnars Jóhanns áfrýjuðu dómnum yfir skjólstæðingi sínum sem féll í október síðastliðnum. 22. febrúar 2021 11:00
Frægur lögfræðingur til liðs við lögmannateymi Gunnars Jóhanns Lögmenn Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem hlaut í október síðastliðinn þrettán ára fangelsisdóm fyrir að hafa banað bróður sínum í norska bænum Mehamn í apríl 2019, hafa fengið lögmanninn Brynjar Meling til liðs við sig. Meling er vel þekktur í Noregi, fyrst og fremst fyrir að vera lögmaður Mulla Krekar, dæmds hryðjuverkamanns. 5. janúar 2021 16:01