Hér eru fimm algengustu ástæðurnar.
1. Álag og sveigjanleiki
Mikið álag og lítill sveigjanleiki er algeng ástæða þess að fólk segir upp vinnunni.
Sem dæmi má nefna niðurstöður rannsóknar sem HAYS í Bandaríkjunum gerði fyrir stuttu en þar sýna niðurstöður að 82% starfsfólks segja tryggð þeirra við vinnuveitandann byggja á því hversu umhugað vinnustaðnum er um heilsu og líðan starfsfólks síns.
Samkvæmt niðurstöðum sömu rannsóknar, skiptir sveigjanleiki einnig miklu máli. Ekki aðeins möguleikar á fjarvinnu í kjölfar Covid, heldur einnig hversu sveigjanlegur vinnustaðurinn er almennt við starfsfólk.
2. Skortur á samkennd
Það hvernig yfirmaðurinn er hefur mikil áhrif á það, hvort fólk segir upp starfi sínu. Til dæmis sýna niðurstöður rannsókna að 92% fólks segist líklegra til að segja ekki upp starfi sínu ef það upplifir yfirmann sinn sem skilningsríkan einstakling sem sýni starfsfólki sínu samkennd.
Hér er ekki verið að tala um samkennd umfram það vinnustaður getur leyft sér heldur frekar þá mannlegu hlið, sem fólk almennt kallar eftir í samskiptum við hvort annað.
Þá upplifir fólk vinnustaði umburðarlyndi meiri á vinnustað ef fjölbreytileiki starfsfólks er sýnilegur, til dæmis með tilliti til kyns, litarhafts, þjóðernis, kynhneigðar, trú og fleira. Ef fjölbreytileikinn er enginn eða mjög lítill, aukast líkurnar á að fólk segi upp.
3. Fólk á erfitt með að tengjast
Á sama tíma og stjórnendur vinna statt og stöðugt að því að reyna að efla helgun (e. engagement) starfsfólks, sýna niðurstöður rannsóknar Gallup í Bandaríkjunum að það er einmitt sterk tenging sem fólk leitast helst eftir í starfi og segir þá síður upp.
Ef þessi tenging er ekki til staðar eða mjög lítil, er hins vegar algengt að fólk hætti. Sem dæmi má nefna ef fólk samsvarar sig ekki við vinnustaðamenninguna. Eða ef hópefli á vinnustaðnum er lítið og fólk á erfitt með að tengjast samstarfsfólki sínu.
Í þessu samhengi er stjórnendum bent á að samvinna starfsfólks og stöðug samskipti þeirra í milli, er mikilvægt atriði til að efla tengslamyndun innan teyma.
4. Léleg endurgjöf
Að upplifa sig vanmetinn í starfi er vond tilfinning og ein af algengum ástæðum þess að fólk segir upp starfi sínu. Enda er hið mannlega eðli okkar þannig að við viljum öll finna að við séum metin að verðleikum.
Ef endurgjöf stjórnenda er léleg, aukast líkurnar á að starfsfólk segi upp.
Hér er sem dæmi hægt að nefna rannsókn þar sem 66% starfsfólks sagðist myndi segja upp í vinnunni, ef þeim liði eins og framlagið þeirra væri ekki metið.
5. Ósýnilegir vaxtarmöguleikar
Síðast en ekki síst eru það vaxtar- og framtíðarmöguleikarnir á vinnustaðnum. Ef fólk er ekki að sjá að það geti vaxið í starfi, er líklegt að það endi með að segja upp.
Þetta þýðir þó ekki að allir þrái stöðuhækkun.
Þvert á móti má sjá í niðurstöðum rannsókna að 70% starfsfólks segist líklegt til að segja upp, ef það sér ekki fram á neina þróun í framtíðinni, til dæmis hvað varðar fjölbreytileika verkefna eða aukna ábyrgð.