Skoða nú allar mögulegar afléttingar Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2022 07:00 Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisyfirvöld skoða nú, í samráði við sóttvarnalækni, allar mögulegar afléttingar með hliðsjón af skynsemi og öryggi.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Willums Þór Þórssonar heilbrigðisráðherra og Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur, setts forstjóra Landspítala, sem þau birtu á Vísi í morgun. Þar segja þau lokametra baráttunnar við yfirgangandi bylgju kórónuveirufaraldursins vera fram undan. Því sé mikilvægt að verkefnið sé skýrt afmarkað svo að við missum ekki sjónar á því hvert við ætlum okkur. „Fullt tilefni er til þess að vera bjartsýn þó að áfram reyni nú á hina margfrægu íslensku seiglu og samvinnu,“ skrifa þau. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri Landspítala.Vísir/Vilhelm „Það er frumskylda stjórnvalda að tryggja þær aðstæður að allir geti sótt sér viðunandi heilbrigðisþjónustu. Við ætlum okkur út úr þessum faraldri og öflugt heilbrigðiskerfi er því forgangsverkefnið,“ segir í aðsendri grein þeirra hér á Vísi. Ákvörðun um neyðarstig tekin að vel ígrunduðu máli Þann 28. desember fór Landspítali á neyðarstig þegar ljóst var að fjölgun Covid-19 tilfella í samfélaginu myndi hafa veruleg áhrif á starfsemi á spítalans. Þau Willum og Guðlaug segja þá ákvörðun hafa verið tekna að vandlega íhuguðu máli, og hafa verið byggða meðal annars á niðurstöðu spálíkans sem unnið var í samstarfi við Háskóla Íslands. „Ómikron afbrigði veirunnar er töluvert meira smitandi en önnur afbrigði hafa verið. Það þýðir að starfsfólk á heilbrigðisstofnunum hefur í meira mæli smitast eða lent í sóttkví, með tilheyrandi röskun á getu stofnananna að tryggja fullnægjandi mönnun. Þegar þetta er skrifað eru til að mynda 187 starfsmenn Landspítala í einangrun vegna veirunnar,“ segja þau. Við því hafi þurft að bregðast hratt og hafi sjálfstætt starfandi aðilar, heilbrigðisstofnanir um allt land og einstaklingar í bakvarðarsveitum sýnt snör viðbrögð til að tryggja mönnun á Landspítala. Við megum vera þakklát fyrir að eiga þann mannskap að enda sé það ekki sjálfgefið. Saman hefur okkur því tekist að brúa bilið vegna áskorunar um mönnun og Landspítali stendur sterkari. Ósérhlífni og hugvit heilbrigðisstarfsfólks sé aðdáunarvert Þau segja ósérhlífni og hugvit heilbrigðisstarfsfólks þegar á reynir hafa verið aðdáunarvert. Nú sé tíminn það sem seigla og útsjónarsemi kerfisins skín sem skærast. „Hvert sem litið er má sjá að starfsfólk reynir að finna lausnir og vinna saman að því að veita lífsnauðsynlega þjónustu,“ segja þau. Þess til stuðning nefna þau göngudeild Covid-19 sem stöðugt hafi verið aðlöguð eftir því sem skilningur á eðli kórónuveirunnar hafi aukist. „Fjölmargir mjög veikir sjúklingar, sem í nágrannalöndum okkar eru í flestum tilvikum lagðir inn á sjúkrahús, hafa hér á landi fengið meðferð á göngudeildinni og árangurinn er ótvíræður; innlagnir vegna sjúkdómsins eru með því minnsta sem þekkist,“ segir í greininni. Fetum leiðina út með stuttum en öruggum skrefum „Það er ljóst að bjartari tímar eru í kortunum og við þurfum að stíga varfærin skref í átt að afléttingum. Þrátt fyrir að einkenni ómikron séu vægari og minna sé um sjúkrahúsinnlagnir þá er fólk enn að veikjast. Eiginleikar ómikron veirunnar valda því að mikið er um smit á meðal barna og ungmenna, með tilheyrandi áhrifum á fjölskyldur og samfélagið í heild,“ segja þau. Því sé brýnt að skoða hvernig aflétta megi sóttvarnaraðgerðum til þess að samfélagið geti aftur gengið sinn vanagang. „Í samráði við sóttvarnalækni eru nú allar mögulegar afléttingar í skoðun með hliðsjón af skynsemi og öryggi.“ Fyrsta skref í afléttingum sé að aflétta neyðarstigi Landspítalans. Það verði ekki gert fyrr fullvissa er um að það sé óhætt. Það verði gert með að vel ígrunduðu máli með hliðsjón af nýjustu spálíkönum og með hliðsjón af gögnum frá okkar færustu sérfræðingum. Þá segir að heilbrigðiskerfið í heild sé að takast vel á við áskorunina og að það sé miklu vinnuframlagi heilbrigðisstarfsfólks, mikilli samvinnu heilbrigðisstofnana um allt land, og samstilltum aðgerðum – þ.e. sóttvarnaraðgerðum og aðgerðum stjórnvalda til að létta á álagi og tryggja mönnun að þakka. Fram undan eru því afléttingar en við þurfum áfram að vera varkár og feta leiðina út með stuttum en öruggum skrefum. Reyni áfram á seiglu og samvinnu Þau Willum og Guðlaug segja okkur ráða við stöðuna, og fyrir það sé vert að staldra við og þakka fyrir. „Allt samfélagið hefur lagt mikið á sig til að ná þessum árangri sem nú blasir við. Með því að standa saman að sóttvarnaráðstöfunum höfum við náð að hemja vöxt veirunnar, vernda okkar viðkvæmustu hópa og draga úr álagi á heilbrigðiskerfið,“ segja þau. Þá hafi hugarfar heilbrigðisstarfsfólks á síðustu vikum verið þjóðinni allri til fyrirmyndar. Með öflugri samstöðu og fórnum heilbrigðisstarfsfólks og almennings hafi tekist að koma í veg fyrir óhefta útbreiðslu alvarlegra veikinda hér á landi með tilheyrandi álagi á heilbrigðiskerfið í landinu. Það sé því fullt tilefni til þess að vera bjartsýn þó að áfram reyni nú á hina margfrægu íslensku seiglu og samvinnu. „Við erum á réttri leið og munum og eigum að feta þá leið saman,“ segja Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri Landspítala.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Landspítalinn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Hvert er verkefnið – leiðin út Heilbrigðiskerfið okkar stendur nú í ströngu við að takast á við enn eitt afbrigði Covid-19 veirunnar – ómikron. Covid-19 innlagnir og eftirköst veikinda kalla á tvöfalda umönnun auk þess sem heilbrigðisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna bráðum veikindum og slysum sem eru ótengd Covid-19. 23. janúar 2022 07:00 Öll rök og tölfræði segi okkur að aflétta takmörkunum „Ég er þeirrar skoðunar að við ættum að fara að huga að því að létta af þessum takmörkunum með einhverjum hætti,“ segir þingmaður Viðreisnar og bendir á að sérfræðingar innan Landspítala séu á sama máli. 22. janúar 2022 23:46 Færeyskur Íslandsvinur útskýrir hvað við þurfum að gera Hvergi í heiminum smitast eins margir af kórónuveirunni daglega og í Færeyjum, en enginn er á sjúkrahúsi. Þess vegna ætla stjórnvöld þar í landi að aflétta öllum samkomutakmörkunum í næsta mánuði - það var ekkert annað í stöðunni, segir færeyskur Íslandsvinur. 22. janúar 2022 22:02 Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Erlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Innlent Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Erlent „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Innlent Fleiri fréttir Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Líkamsárásir, heimilisofbeldi og vopnaður ökumaður Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrðan kafbát „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Ljóst að einhverjir dragi lög sín til baka Sjá meira
Hvert er verkefnið – leiðin út Heilbrigðiskerfið okkar stendur nú í ströngu við að takast á við enn eitt afbrigði Covid-19 veirunnar – ómikron. Covid-19 innlagnir og eftirköst veikinda kalla á tvöfalda umönnun auk þess sem heilbrigðisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna bráðum veikindum og slysum sem eru ótengd Covid-19. 23. janúar 2022 07:00
Öll rök og tölfræði segi okkur að aflétta takmörkunum „Ég er þeirrar skoðunar að við ættum að fara að huga að því að létta af þessum takmörkunum með einhverjum hætti,“ segir þingmaður Viðreisnar og bendir á að sérfræðingar innan Landspítala séu á sama máli. 22. janúar 2022 23:46
Færeyskur Íslandsvinur útskýrir hvað við þurfum að gera Hvergi í heiminum smitast eins margir af kórónuveirunni daglega og í Færeyjum, en enginn er á sjúkrahúsi. Þess vegna ætla stjórnvöld þar í landi að aflétta öllum samkomutakmörkunum í næsta mánuði - það var ekkert annað í stöðunni, segir færeyskur Íslandsvinur. 22. janúar 2022 22:02