Innlent

Svarar um­boðs­manni um setningu ráðu­neytis­stjóra

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Áslaug Arna er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Áslaug Arna er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Vísir/Vilhelm

Setning Ásdísar Höllu Bragadóttur í embætti ráðuneytisstjóra í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu var heimil samkvæmt lögum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu á vef ráðuneytisins.

Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, sendi á þriðjudag bréf til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þar sem hann óskaði eftir upplýsingum um hvort embættið hefði verið auglýst laust til umsóknar og á því á hvaða lagagrundvelli setning Ásdísar í embætti hefði verið byggð.

Í svari ráðuneytisins, sem má sjá á vef Stjórnarráðsins, kemur fram að um tímabundna setningu hafi verið að ræða og það verið auglýst til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Ásdís Halla Bragadóttir var sett í embætti ráðuneytisstjóra til þriggja mánaða.Stjórnarráðið

„Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra hefur nú þegar auglýst embætti ráðuneytisstjóra líkt og ætlunin vera að gera eftir að nýtt ráðuneyti tók til starfa 1. febrúar sl. Nýtt ráðuneyti getur ekki tekið til starfa nema með ráðuneytisstjóra. Því var sett í embættið tímabundið til þriggja mánaða. Ekki er um að ræða fasta skipun heldur tímabundna setningu og tíminn nýttur til að auglýsa og ráða í embætti ráðuneytisstjóra. Ráðherra hafði við stofnun nýs ráðuneytis einungis val um það að flytja embættismann varanlega í starfið eða setja einhvern til skamms tíma á meðan auglýst væri,“ segir þar.

Þá segir að setningin gildi til þriggja mánaða, sem telja verði hæfilegan tíma fyrir skipunarferli ráðuneytisstjóra, með hliðsjón af ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

„Ásdís Halla var ráðin sem verkefnastjóri við undirbúnings nýs ráðuneytis í byrjun desember 2021 og hefur því unnið með starfsmönnum ráðuneytisins, og í góðu samstarfi við Stjórnarráðið, að því að móta skipulag nýs ráðuneytis. Það lá því beint við að hún myndi halda því verkefni áfram og sinna um leið starfi ráðuneytisstjóra sem fer m.a. með yfirstjórn og stefnumótun ráðuneytisins undir yfirstjórn ráðherra á meðan embættið er auglýst.

Embættið hefur nú verið auglýst og umsóknarfrestur er til 28. febrúar [næstkomandi],“ segir þá í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×