Fótbolti

Dag­ný gat ekki komið í veg fyrir tap West Ham

Aron Guðmundsson skrifar
Dagný í leik með West Ham United 
Dagný í leik með West Ham United 

Íslenska atvinnu- og landsliðskonan í knattspyrnu, Dagný Brynjarsdóttir, var í byrjunarliði West Ham United og spilað allan leikinn er liðið laut í lægra haldi gegn Brighton í efstu deild Englands í dag. 

Eina mark leiksins kom í seinni hálfleik, nánar tiltekið á 57.mínútu og það skoraði Kayleigh Green eftir stoðsendingu frá Katie Robinson. 

Bæði lið eru að berjast í neðri helmingi deildarinnar. West Ham United situr í 8.sæti með 17 stig, Brighton er í 9.sæti með 16 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×