Thuram skaut Inter á toppinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. október 2023 19:00 Marcus Thuram skaut Inter á topp Serie A. EPA-EFE/MATTEO BAZZI Sigurmark Marcus Thuram gegn Roma þýðir að Inter er komið á topp Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Inter tók á móti lærisveinum José Mourinho í Roma í einum af stórleikjum helgarinnar í Serie A. Mourinho sjálfur var þó hvergi sjáanlegur enda í leikbanni eftir að vera sendur upp í stúku í 1-0 sigri Roma á Monza í síðust umferð. Það verður seint sagt að Rómverjar hafi sýnt sínar bestu hliðar í Mílanó-borg í dag en liðið gat lítið sem ekki neitt sóknarlega. Það var ljóst að Rómverjar ætluðu að halda hreinu og fara heim með eitt stig í pokahorninu. Það leikplan gekk ágætlega upp þangað til á 81. mínútu leiksins þegar Federico Dimarco sendi á Thuram sem kláraði afbragðs vel af stuttu færi. Staðan orðin 1-0 Inter í vil og það reyndust lokatölur leiksins. @MarcusThuram goditi questo ruggito nerazzurro! #ForzaInter #InterRoma pic.twitter.com/XbwDpmmENI— Inter (@Inter) October 29, 2023 Inter er mætt á topp deildarinnar með 25 stig að loknum 10 leikjum. Roma er á sama tíma í 8. sæti með 14 stig. Önnur úrslit í dag Cagliari 4-3 Frosinone Monza 1-1 Udinese Fótbolti Ítalski boltinn
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn