Fauk í Guðlaug Þór á þinginu: „Nei, nei, við segjum nei!“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. desember 2023 23:21 Guðlaugur Þór svaraði Andrési Inga fullum hálsi eftir fyrirspurn þess síðarnefnda. Guðlaugur sagði Pírata hafa lítið gert í loftslagsmálum nema standa í vegi fyrir aðgerðum. Vísir/Vilhelm Umhverfisráðherra byrsti sig í óundirbúnum fyrirspurnartíma um orkumál á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan hafði kynt undir ráðherra með gagnrýni á aðgerðir ríkisstjórnarinnar í orkumálum áður en fyrirspurn þingmanns Pírata um rafmagnsreiðhjól fyllti mælinn.
Virkjunarkostir, niðurfelling ívilnana vegna kaupa á rafbílum og frumvarp að neyðarlögum um skömmtunarstjóra raforku voru meðal umræðuefna í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag og var Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, til svara. Spurning þingmanns Pírata um rafmagnsreiðhjól og yfirlýsingar um aðgerðarleysi komu illa við Guðlaug sem svaraði fullum hálsi eins og sjá má hér að neðan: Ríkisstjórnin ekki búin að standa sig í stykkinu í orkumálum Þorgerður Katrín, þingmaður Viðreisnar, steig fyrst í pontu og lýsti því yfir að setja þyrfti neyðarlög í landinu af því ríkisstjórnin hefði ekki sinnt hlutverki sínu í orkumálum undanfarin sex ár. Síðan spurði hún hvort Guðlaugur væri tilbúinn til að mynda nýjan meirihluta til að tryggja öryggi Íslendinga. Þorgerður Katrín, formaður Viðreisnar, sagði ríkisstjórnina ekki hafa staðið sig í stykkinu í loftslagsmálum.Vísir/Vilhelm Guðlaugur gaf lítið fyrir fyrirspurn Þorgerðar og sagði mikið hafa gerst í orkumálum undanfarin tvö ár. Hins vegar hefði Þorgerður gleymt einu risamáli, það vantaði heitt vatn í Reykjavík og þar bæri Viðreisn ábyrgð. „Af hverju erum við að setja hér neyðarlög? Af því að ríkisstjórnin er ekki búin að standa sig í stykkinu,“ svaraði Þorgerður. Næstur til að sauma að Guðlaugi var Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sem hóf ræðu sín á að segja „Í dag erum við öll Jón Gunnarsson“ og vísaði þar í yfirlýsingar Jóns fyrr um daginn að ríkisstjórnin stæði á brauðfótum. Bergþór spurði síðan hvort kæmi til greina að setja sérlög um virkjunarkosti. Guðlaugur skautaði fram hjá þeirri spurningu og sagði að deilur um orkumál væru víðar en á Íslandi. Miklar yfirlýsingar en litlar aðgerðir Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, steig þá í pontu og byrjaði á að bjóða Guðlaug velkominn heim af COP28 sem haldinn var í Dúbaí „þar sem ráðherrann eins og aðrir fulltrúar stjórnvalda mætti til að lýsa því hvernig þau væru að setja loftslagsmál í forgang“ þó hvorki tölurnar né aðgerðir sýndu það Andrés Ingi spurði Guðlaug Þór út í ívilnanir vegna kaupa á rafmagnsbílum og rafmagnshjólum.Vísir/Sigurjón Andrés viðurkenndi að rafbílavæðing á Íslandi hefði gengið betur en í flestum öðrum löndum en ekki skilað markmiðum um réttlát umskipti. Aðferðafræði ríkisstjórnarinnar við kerfisbreytingar á ívilnunum til rafbíla væri kostuleg. Á sama tíma væri dregið úr stuðningi um 6,1 milljarð en þeirri upphæð hefði þó ekki verið varið í aðrar loftslagsaðgerðir heldur væri henni „stungið beinustu leið í vasann á ríkissjóði“. Samhliða væri stuðningur við reiðhjól og rafmagnsreiðhjól felldur niður. Andrés endaði ræðu sína á að spyrja hvernig það þjónaði loftslagsmarkmiðum að fella niður ívilnanir til reiðhjóla og rafmagnsreiðhjóla. Allir í Dúbaí áttuðu sig á orkuskiptunum Fyrirspurn Andrésar og yfirlýsing um aðgerðarleysi kom illa við Guðlaug sem gat ekki annað en svarað fullum hálsi. „Það er kominn tími til að þeir sem tali fyrir loftslagsmálum átti sig á út á hvað það gengur. Það gengur út á það að taka út jarðefnaeldsneyti og setja græna orku í staðinn. Það eru allir í Dúbaí sem átta sig á því,“ sagði Guðlaugur í ræðu sinni. Guðlaugi Þór var ekki skemmt vegna fyrirspurnar Andrésar Inga og svaraði hann þingmanninum fullum hálsi.Vísir/Vilhelm Þegar kæmi að stórum loftslagsaðgerðum segðu þingmenn Pírata og Samfylkingar, sem alla jafna töluðu um mikilvægi loftslagsaðgerða, bara „Nei, nei, við segjum nei!“ Margt hefði gerst í loftslagsmálum en það væri ekki Pírötum að þakka þar sem þeir hefðu reynt að koma í veg fyrir það. Guðlaugur svaraði síðan ásokunum Andrésar um að sparnaðinum væri stungið í vasann á ríkissjóði. „Ég vil bara vekja athygli á því að það sem hér er á ferðinni, og það er ótrúlegt að kjörinn fulltrúi átti sig ekki á því, er að við erum að reka ríkissjóð með halla. Hvað þýðir það? Við erum að senda reikning á börnin okkar. Það er ekki bannað að spara í ríkisrekstri, það er ekki bannað,“ sagði Guðlaugur síðan. Það lá alltaf fyrir að það sem við erum að gera, hvort sem það er rafbílavæðing eða rafhjól eða hvað það er, er allt saman tímabundið. Það er alveg hreint og klárt. Það verður líka að vera sjálfbærni í efnahagsmálum. Og af því að hv. þingmaður kalli eftir réttlátum umskiptum þá hlýtur hann að fagna nýju fyrirkomulagi. En hann gleymdi að minnast á það.
Umhverfismál Alþingi Píratar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sjálfstæðisflokkurinn Orkuskipti Orkumál Skattar og tollar Mest lesið Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Enn í lífshættulegu ástandi Innlent „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Innlent Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent Drengurinn fannst heill á húfi Innlent Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Innlent Fleiri fréttir Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Evran, Icelandair, brottfararstöð og Bubbi á Sprengisandi „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira