Sindri segir meinta skipulagningu hryðjuverka hafa verið grín Árni Sæberg skrifar 8. febrúar 2024 18:12 Sindri Snær segist engin hryðjuverk hafa skipulagt. Vísir/Árni Sindri Snær Birgisson segir í skýrslutöku fyrir dómi að hann hafi ekki með nokkru móti verið að skipuleggja hryðjuverk þegar hann ræddi við félaga sinn um fjöldamorð, kaup á lögreglufatnaði, aðdáun á fjöldamorðingjum og fleira í þeim dúr. „Ég neita þessu alfarið, þetta er bara galið.“ Hann og verjandi hans hafa gagnrýnt ákæruvaldið harðlega fyrir að taka hlutina úr samhengi.
Þetta kom fram í framburði Sindra Snæs fyrir dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu svokallaða hófst í morgun. Dagurinn hófst á því að Sindri Snær tók afstöðu til þeirra ákæruliða sem snúa að vopnalagabrotum. Sindri Snær sætir ákæru fyrir að hafa með athöfnum og yfirlýsingum sýnt í verki áform sín til þess að fremja hryðjuverk. Athafnir og yfirlýsingar Sindra Snæs eru reifaðar ítarlega í 63 liðum ákærunnar. Vísir greindi ítarlega frá efni ákærunnar þegar hún var gefin út: Svarar öllu á sama máta Sindri Snær hefur verið spurður ítarlega, oft of ítarlega að mati dómaranna þriggja í málinu, út í hvern lið ákærunnar og þau samskipti sem í þeim er lýst. Sindri Snær hefur nánast á undantekninga svarað svo að um grín hafi verið ræða milli hans og meðákærða Ísidór Nathanssyni. Þeir hafi báðir mjög svartan húmor og engin alvara hafi verið á bak við samræður þeirra. „Ég segi margt og segi alls konar vitleysu. Ég meina ekki allt sem ég segi.“ Til að mynda segist hann hafa verið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og búinn að drekka í tvo sólarhringa þegar hann sendi skilaboð um að hann væri á grensunni með að fremja fjöldamorð. Las stefnuskrá Breiviks sér til dægrastyttingar Í ákærunni segir að Sindri Snær hafi sýnt áform sín um að fremja hryðjuverk meðal annars með því að sækja, móttaka og tileinka sér efni um þekkta aðila sem framið hafa hryðjuverk, tileinka sér aðferðafræði þeirra og hugmyndafræði. Í ákæru eru talin upp sautján tilvik þar sem Sindri Snær til að mynda sótti stefnuskrá norska hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik. Sindri Snær gengst við því að hafa sótt stefnuskrána en hann hafi ekki tileinkað sér aðferða- eða hugmyndafræði sem í henni er lýst. Hann hafi lesið ritið eins og hverja aðra bók, sér til dægrastyttingar. Þá er vísað til stefnuskrár Breiviks í fjölda liða ákærunnar, svo sem þar sem ferðir Sindra Snæs um Internetið eru tíundaðar. Þannig er það tengt saman að hann hafi leitað að eiturefnum á borð við rísín og blásýru og að Breivik hafi minnst á efnin í skrifum sínum. Þetta segir Sindri Snær hafa verið alls ótengt. Kannast ekkert við að hafa mælt lokanir vegna Gleðigöngunnar Sindra Snæ er gefið að sök að hafa undirbúið hryðjuverk á Hinsegin dögum í Reykjavík með því að hafa farið „á vettvang“ og mælt lengd milli lokana, með það að markmiði að sjá hvort unnt væri að aka bíl á milli. Þetta sagðist Sindri Snær ekkert kannast við að hafa gert. Þá gerði Sveinn Andri Sveinsson, verjandi hans, athugasemd við það að „vettvangur“ væri ekki tilgreindur með nákvæmari hætti í ákæru. Aðspurður kvaðst sækjandi ekki geta skýrt það nánar. Verjandi hans spurði hann þá hvar hann hefði verið dagana í aðdraganda Gleðigöngunnar. Hann kvaðst hafa komið heim af Þjóðhátíð 31. júlí, verið með unnustu sinni dagana fram að Gleðigöngu og farið með henni til Hveragerðis sama dag og gangan var. Þannig hafi hann ekki verið með hugann við hryðjuverk. Í sama kafla ákærunnar var fjallað um það að Sindri Snær hefði athugað hvenær Ramadan, föstumánuður múslima, væri. Sindri Snær sagðist hafa heyrt viðtal við mann sem mælti með föstum í hlaðvarpi Joes Rogan. Því hafi hann verið forvitinn um það hvernig Ramadan virkaði. Hafi verið sár og dapur Undir lokin spurði verjandi Sindra Snæs hann hvaða áhrif málið hefði haft á hann frá því að það kom upp í september árið 2022. Sindri Snær sagði undanfarið rúma ár hafa verið frekar ömurlegt. Hann hafi ekkert unnið og hefði ekki einu sinni reynt að verða sér úti um vinnu. Hann sé þó nýbyrjaður í námi. Hann sagðist ekki vera reiður út í nokkurn mann vegna málsins, hann væri frekar sár og dapur. Hann hafi glímt við þunglyndi og sótt sálfræðitíma vegna þess. Hann hafi þó ekki þegið nein lyf, enda sé honum illa við þau. Þá sagði hann að þau unnusta hans væru enn saman, hún vinni sem sjúkraþjálfari í Svíþjóð og hann hafi heimsótt hana þangað.
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Sendu hjartahlý skilaboð eftir meinta skipulagningu hryðjuverka Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar sakbornings í hryðjuverkamálinu, segir að margt sem umbjóðandi hans sé sakaður um sé hreinn tilbúningur. Hann sakar ákæruvaldið um að leggja fram samtöl mannanna, í mörgum tilfellum, á samhengislausan hátt þannig að ekki sé hægt að lesa það á réttan hátt. 15. september 2023 14:43 Ný ákæra í hryðjuverkamálinu Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa út nýja ákæru í hryðjuverkamálinu svokallaða, þar sem tveir menn voru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Fyrri ákæru var vísað frá dómi, bæði í héraði og fyrir Landsrétti. 9. júní 2023 09:58 Frávísun í hryðjuverkamálinu staðfest með minnsta mun Landsréttur hefur staðfest frávísun á þeim köflum ákæru á hendur tveimur karlmönnum á þrítugsaldri er fjallar um hryðjuverk, tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Tveir dómarar Landsréttar vildu staðfesta frávísun úr héraðsdómi en einn vildi fella úrskurðinn úr héraði úr gildi. Héraðssaksóknari hefur þrjá mánuði til að gefa út nýja ákæru. 10. mars 2023 15:53 Hryðjuverkaákæran „hvorki fugl né fiskur“ og rök ákæruvaldsins haldi ekki Verjendur tveggja manna sem eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild segja verulega galla í ákærunni. Ef ákæruliðum sem snúa að hryðjuverkabrotum verði ekki vísað frá verði þetta líklega í fyrsta sinn sem ákæra sem sé jafn óljós og almennt orðuð slyppi í gegn. Saksóknari ber fyrir sig að ekki hafi verið hægt að skýra málin betur, sem dómari hefur gagnrýnt. 26. janúar 2023 18:00 Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Erlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Innlent Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Innlent Fleiri fréttir Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Sjá meira
Sendu hjartahlý skilaboð eftir meinta skipulagningu hryðjuverka Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar sakbornings í hryðjuverkamálinu, segir að margt sem umbjóðandi hans sé sakaður um sé hreinn tilbúningur. Hann sakar ákæruvaldið um að leggja fram samtöl mannanna, í mörgum tilfellum, á samhengislausan hátt þannig að ekki sé hægt að lesa það á réttan hátt. 15. september 2023 14:43
Ný ákæra í hryðjuverkamálinu Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa út nýja ákæru í hryðjuverkamálinu svokallaða, þar sem tveir menn voru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Fyrri ákæru var vísað frá dómi, bæði í héraði og fyrir Landsrétti. 9. júní 2023 09:58
Frávísun í hryðjuverkamálinu staðfest með minnsta mun Landsréttur hefur staðfest frávísun á þeim köflum ákæru á hendur tveimur karlmönnum á þrítugsaldri er fjallar um hryðjuverk, tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Tveir dómarar Landsréttar vildu staðfesta frávísun úr héraðsdómi en einn vildi fella úrskurðinn úr héraði úr gildi. Héraðssaksóknari hefur þrjá mánuði til að gefa út nýja ákæru. 10. mars 2023 15:53
Hryðjuverkaákæran „hvorki fugl né fiskur“ og rök ákæruvaldsins haldi ekki Verjendur tveggja manna sem eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild segja verulega galla í ákærunni. Ef ákæruliðum sem snúa að hryðjuverkabrotum verði ekki vísað frá verði þetta líklega í fyrsta sinn sem ákæra sem sé jafn óljós og almennt orðuð slyppi í gegn. Saksóknari ber fyrir sig að ekki hafi verið hægt að skýra málin betur, sem dómari hefur gagnrýnt. 26. janúar 2023 18:00