Því væri eina mögulega markmið „skipuleggjenda“ þess að vígamenn Íslamska ríkisins í Khorasan (ISKP) frá Tadsíkistan hefðu myrt að minnsta kosti 144 í tónleikahöllinni í Crocus nærri Moskvu í síðasta mánuði, að valda sundrung meðal rússnesku þjóðarinnar.
Þetta sagði Pútín í ávarpi sem sjónvarpað var í Rússlandi í dag.
Ráðamenn í Rússlandi og málpípur þeirra í rússneskum fjölmiðlum hafa ítrekað haldið því fram að Úkraínumenn hafi greitt mönnunum og hafa jafnvel bendlað Bandaríkjamenn, Breta og nú síðast Frakka við árásina. Leiðtogar þessara ríkja segja það þvælu.
Forsvarsmenn ISKP hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni og hafa sömuleiðis birt myndefni sem árásarmennirnir fjórir tóku upp á meðan á árásinni stóð. ISKP er angi Íslamska ríkisins sem er virkur í Mið-Asíu og þá helst í Afganistan.
Eins og upprunalegu ISIS-samtökin er markmið ISKP að stofna kalífadæmi sem stýrt er með sjaríalögum. Nafn samtakanna, Khorasan, vísar til nafns svæðis sem inniheldur meðal annars hluta landsvæðis Íran, Afganistan, Túrkmenistan, Tadsíkistan og Úsbekistan.
Þúsundir Rússa og annarra manna frá ríkjum Mið-Asíu sem mörg hver tilheyrðu Sovétríkjunum, gengu til liðs við Íslamska ríkið þegar kalífadæmið var stofnað í Írak og Sýrlandi árið 2014.
Hafa gert fjölda árása gegn Rússum
Einn talsmanna ISIS ítrekaði á dögunum að samtökin bæru ábyrgð á árásinni og vísaði hann meðal annars til þess að vígamenn Íslamska ríkisins hefðu barist við rússneska hermenn bæði í Afríku og í Sýrlandi og hrósaði hann ISKP vegna árásarinnar í Moskvu. Þá hafa vígamenn Íslamska ríkisins ítrekað gert árásir í Rússlandi og gegn rússnesku fólki.
Árið 2015 sprengdu vígamenn ISIS farþegaþotu frá Rússlandi yfir Sinaískaga í Egyptalandi en 224 dóu í þeirri árás. Menn sem aðhyllast ISIS hafa einnig stungið fólk í Rússlandi og skotið fólk til bana, eins og farið er yfir í frétt Meduza.
Rússar hafa áður fengið sambærilegar viðvarnir frá Bandaríkjunum og notað þær til að koma í veg fyrir árásir. Pútín þakkaði til að mynda Donald Trump, þáverandi forseta, fyrir upplýsingar sem eiga að hafa hjálpað Rússum að stöðva tvær hryðjuverkaárásir í Pétursborg, árið 2017 og árið 2019.
Þann 7. mars, degi eftir að bandarískir embættismenn vöruðu kollega sína í Rússlandi við því að vígamenn ISKP ætluðu sér að gera hryðjuverkaárás í Rússlandi, og nefndu meðal annars tónleikahöllina í Crocus sem mögulegt skotmark, lýstu forsvarsmenn FSB (áður KGB) því yfir að árás vígamanna ISKP á bænahús gyðinga í Moskvu hefði verið stöðvað.
Þeir sögðu vígamennina hafa verið fellda í skotbardaga við öryggissveitir.
Sambærileg viðvörun hafði einnig borist frá klerkastjórninni í Íran.