Til stuðnings Kristrúnu Frostadóttur Haukur Arnþórsson skrifar 8. júlí 2024 13:00 Nú býðst sósíaldemókrötum og vinstri mönnum að sameinast um ábyrga stefnu í útlendingamálum – og fleiri málum. Ekki er óhugsandi að einhverjum hafi þótt mál til komið. Nokkra leiðandi Samfylkingarmenn virðist klæja í lófana að fara í slag við nýja forystu í flokknum, einkum Kristrúnu Frostadóttur, og ganga þeir mismunandi djarflega fram meðan þeir brýna kutana. Þeir eru enn í fyrstu skrefunum, hikandi, en tilbúnir með hnífana í skúmaskotum. Kannski gera þeir þetta af því að nýja forystan höfðar greinilega til kjósenda – sem óvildarmenn hennar gerðu hins vegar ekki áður. Vilhjálmur Þorsteinsson, sem lengi hefur verið leiðandi félagi í Samfylkingunni, er sem stendur músin sem læðist (meðan Helga Vala Helgadóttir og fleiri eru mýsnar sem stökkva), en hann skrifar á vegg sinn á Facebook í gær færslu um „mannréttindi“ og „ábyrgð í útlendingamálum“. Ég ætla að hlífa lesendum mínum við skrifum um vestræna borgaralega gildið mannréttindi - sem auðvitað verður ekki afgeitt með svart/hvítum yfirlýsingum – en segja nokkur orð um ábyrgð í útlendingamálum. Ábyrgð í útlendingamálum Vilhjálmur segir að ábyrgð í útlendingamálum felist í þjóðhagslegri hagkvæmni af því að flytja inn nýtt vinnuafl. Kalla má það hagfræðilega ábyrgð. Allt er það nú ágætt hjá honum – þótt augljóst sé hvert hann beinir atgeir sínum með svo einfeldingslegri nálgun. Hann veit betur. Á málinu eru fleiri hliðar og ekki síður mikilvægar. Ég vil nefna „pólitíska ábyrgð“. Það er sú ábyrgð sem Samfylkingin (og raunar Sjálfstæðisflokkurinn) er að axla. Hún tekur mið af „þjóðarviljanum“ – ég nefni það hugtak af því að það var fyrir nokkrum árum hugstætt mörgum fylgismönnum þjóðaratkvæðagreiðslna. En vill það sama fólk – fylgismenn þjóðaratkvæðagreiðslna – raunverulega að vilja almennings sé mætt í útlendingamálum, eða í öðrum málum þar sem stefna þess er önnur en almennings? Samfylkingin (og Sjálfstæðisflokkurinn) eru nákvæmlega að ganga til móts við almenning. Og í því felst pólitísk ábyrgð. Af því að ábyrg borgaraleg pólitík felst ekki síst í því að hindra flokkadrætti og skautun – í þessu tilviki óvægna hægri þjóðernisstefnu. Auðvitað er ekki öruggt að þjóðernishyggjunni verði haldið niðri með því að koma að einhverju leyti til móts við hana, en hörð lína, útilokun, fyrirlitning gagnvart stefnunni og að ásaka hana og fylgismenn hennar um hræðilegustu atburði evrópusögunnar – þjóðernisstefnunni sem nú ríður húsum í Evrópu og Bandaríkjunum – hefur leitt af sér mikla baráttugleði, mikla fylgisaukningu og hert hana í eldi andstreymis og var síst þörf á því. Hert hana hættulega. Þetta sjáum við í Hollandi, Svíþjóð, Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu og Finnlandi – að ekki sé minnst á Ungverjaland og Pólland. En tökum eftir – ekki í Danmörku. Danska leiðin, sem sósíaldemókratarnir tóku upp – og Kristrún beinir kannski öðru auganu að – er að mæta vilja almennings í útlendingamálum. Það er mín afstaða sem þetta skrifa og hef rannsakað dönsk stjórnmálum um árabil – að stefnubreyting sósíaldemókratanna byggi á sterkri hefð í dönskum stjórnmálum, þeirri að hlusta á grasrótina. Sem við öll – ekki síst fylgjendur þjóðaratkvæðagreiðslna – viljum að íslensk stjórnvöld fylgi og að við höfum dönsk stjórnmál sem fyrirmynd. Auk þess er stefnubreytingin alvarleg tilraun til að mæta ógn hægri þjóðernishyggjunnar með nýrri og annarri leið en hindrunum, fyrirlitningu og ásökunum. Hún virðist bera árangur. Er þörf á þessu hér á landi? Getum við ekki bara notast við milda útlendingapólitík eins og verið hefur og haldið áfram að kalla almenning sem er neikvæður gagnvart henni rasista? Útlínur hættunnar Ég tel að í þjóðfélaginu, kannski einkum meðal eldra fólks, kraumi alvarleg hræðsla og andúð á mildri stefnu í útlendingamálum. (Og skjótið nú ekki sendiboðann!) Hræðsla og andúð sem ekki verður horft framhjá. Munum að hræðsla er öflugasta tæki stjórnmálamanna og stjórnvalda og getur fengið almenning til að gera ótrúlegustu hluti. Hún er ekki afl sem hlæja má að. Ég tel að andúðin beinist að hælisleitendum og aðstöðu þeirra, félagslegum réttindum þeirra á Íslandi og réttindum til langra málaferla við yfirvöld á kostnað ríkisins. Þessu fylgir löng íslandsdvöl með fullum réttindum sem eru stöðugt umræðuefni í fjölmiðlum. Og illum hug til þeirra Íslendinga sem hagnast á þeim málarekstri og umstangi. Þá byggir þjóðernishyggja þjóðarinnar ekki síst í varðstöðunni um tungumálið. Margir þola ekki að heyra bjagaða íslensku, aðrir þola ekki að vera afgreiddir í þjónustufyrirtækjum af enskumælandi fólki – og einhver hópur er harðdrægur í afstöðu sinnar til lýtalausrar íslensku og beinir spjótum sínum jafnvel að frjálslyndum Íslendingum. Gegn þessu hefur Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emerítus unnið mikilvægt starf, en nú er farið að draga mannorð hans í skítinn vegna þess. Þá er ég ekki farinn að ræða um það fólk sem kemur hingað á grundvelli frjálss vinnumarkaðar, frá Evrópu. Því fólki gengur misvel að læra íslensku. Þá er ég ekki heldur farinn að ræða um helsta þjóðfélgsmein meðal þjóðarinnar – mein sem er við að gera fátækt fólk að helstu hatursmönnum sjálfrar þjóðfélagsgerðarinnar – sem er húsnæðisskortur á stór-reykjavíkursvæðinu og algert ábyrgðarleysi stjórnmálamanna gagnvart honum. Og nefndi ég andúð á þeim hluta aðflutts fólks sem heldur í menningu sína – sem í ákveðnum tilvikum gengur gegn mannréttindum og íslenskum gildum. Og ef við lítum á hagfræðina hans Vilhjálms Þorsteinssonar, þá er að byggjast upp andúð á ferðamönnum – andúð sem gæti unnið ferðaþjónustunni, sem er ein helsta stoð velferðar þjóðarinnar, varanlegt tjón. Hvað ber að gera? Vera má að stjórnmálamennirnir þurfi að stunda ákveðna jafnvægislist, annars vegar milli útlendingaandúðar og mörgum birtingarmyndum hennar og hins vegar einarðrar kröfu um mannúð gagnvart þjáningum um allan heim, mannúð sem nær langt út fyrir stjórnarskrárskyldur ríkisins. Vera má að sú jafnvægislist sé mikilvægasta verkefni stjórnmálanna í bili (auk húsnæðismálanna). Ég tel endurnýjaða stefnu Samfylkingunnar (og Sjálfstæðisflokksin) í útlendingamálum ábyrga tilraun til að hindra uppkomu hægri þjóðernisflokks. Þannig taki Samfylkingin ábyrgð á þjóðfélagsástandinu og vinni fyrir sitt leyti gegn skautun og þjóðernishyggju. Þá tel ég að Kristrún Frostadóttir byrji feril sinn vel sem formaður. Mál var til þess komið að íslenskir sósíaldemókratar og vinstri menn fengju ábyrgan foringja og að þeir leiði þjóðfélagið með ábyrgri pólitík. Nú býðst þeim það tækifæri og væri meiri mannsbragur að því að sameinast um nýja stefnu – en að fara í skotgrafirnar. Þeir hafa verið þar nógu lengi. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Haukur Arnþórsson Alþingi Innflytjendamál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun