Íslenski boltinn

„Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA. Vísir/Einar

Annað árið í röð er KA komið í bikarúrslit karla í fótbolta og reynir að fella bikarmeistara Víkings. Þjálfari KA-manna segir menn ekki endilega í hefndarhug, en njóti góðs af reynslu síðasta árs og ákveðnir í að vinna loks bikarinn.

KA tapaði 3-1 í úrslitum keppninnar fyrir Víkingum í fyrra og nú mætast liðin annað árið í röð. Rúm 40 ár eru síðan sömu lið mætast í bikarúrslitum tvö ár í röð.

Klippa: Ætla að taka titilinn norður

Hallgrímur Jónsson, þjálfari KA, segir leikmenn liðsins njóta góðs af reynslunni sem fylgdi því að taka þátt í úrslitunum í fyrra og séu ákveðnir í að taka lokaskrefið og vinna loks titilinn.

„Við erum bara spenntir, komum hérna í fyrra og erum reynslunni ríkari. Því miður töpuðum við í fyrra og við töluðum um það eftir leikinn að alvöru menn standa upp og reyna aftur og við erum komnir aftur. Við erum mættir hérna til að taka bikarinn heim,“ segir Hallgrímur

Hefnd sé KA-mönnum ekki ofarlega í huga eftir síðasta ár.

„Ég vil kannski ekki meina að við viljum hefna á móti Víkingi. Við erum spenntir fyrir því að vinna bikarinn með KA, við viljum fara með hann heim, það hefur aldrei gerst í sögunni. Þar sem við höfum prófað þetta áður ætlum við að láta úrslitin vera okkur í hag í þetta skiptið,“ segir Hallgrímur.

„Við erum á góðu róli núna og erum með sjálfstraust. Síðast þegar við spiluðum við Víking unnum við þá og það mun líka hjálpa okkur,“ bætir hann við.

Víkingar vonast til að vinna keppnina fimmta skiptið í röð síðar í dag en sagan er ekki með KA-mönnum sem hafa komst fjórum sinnum í úrslit keppninnar en aldrei tekist að vinna. Hefur þessi sigurhefð eitthvað að segja?

„Ég veit það ekki. Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“

Fleira kemur fram í viðtalinu við Hallgrím sem má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir

„Held að þetta verði mjög erfiður leikur“

„Allir í liðinu eru mjög spenntir fyrir leiknum og vilja halda áfram góðri leiktíð,“ segir Nikolaj Hansen, fyrirliði Víkings, um bikarúrslitaleik morgundagsins í fótbolta þar sem Víkingur mætir KA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×