Fótbolti

Messi: Þú ert hugleysingi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi lætur Anderson Daronco dómara heyra það í leik Argentínu og Paragvæ.
Lionel Messi lætur Anderson Daronco dómara heyra það í leik Argentínu og Paragvæ. Getty/Christian Alvarenga/

Lionel Messi var allt annað en ánægður með dómarann í 2-1 tapi heimsmeistara Argentínu á móti Paragvæ í undankeppni HM í nótt.

Argentínumenn komust yfir með marki Lautaro Martinez eftir aðeins ellefu mínútur en frábær hjólhestaspyrna Eduardo Sanabria jafnaði leikinn og varnarmaðurinn Alderete skoraði síðan sigurmarkið snemma í seinni hálfleik eftir aukaspyrnu.

Tapið breytir ekki því að argentínska landsliðið er enn í toppsæti Suðurameríkuriðilsins með 22 stig úr ellefu leikjum. Paragvæ komst upp í sjötta sætið með sigrinum en sex efstu þjóðirnar komast á HM.

Lionel Messi var í byrjunarliði Argentínu en hann komst lítið áleiðis. Þetta var ekki góð vika fyrir hann því Inter Miami datt út úr úrslitakeppni MLS-deildarinnar um síðustu helgi.

Messi var líka mjög pirraður út í dómara leiksins. Samskipti þeirra náðust á upptöku.

„Þú ert hugleysingi,“ sagði Messi við dómarann eftir að lokaflautið gall og benti á hann. Messi bætti seina við: „Ég kann ekki vel við þig.“ Messi var ekki að koma vel út með þessari framkomi sinni að það verða líklega engir eftirmálar af henni.

Brasilíumaðurinn Anderson Daronco dæmdi leikinn.

Messi er markahæsti leikmaður Suðurameríkuriðilsins með sex mörk. Hann hafði átt þátt í fimm mörkum (3 mörk og 2 stoðsendingar) í leiknum á undan þar sem Argentínu menn unnu 6-0 sigur á Bólivíu.

Að þessu sinni gekk ekkert upp hjá kappanum.

Þrátt fyrir þennan pirring og þessi samskipti við brasilíska dómarann þá slapp Messi við spjald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×