Innlent

Inflúensugreiningar tvö­földuðust milli vikna

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Inflúensan hefur tekið við af RS-veirunni.
Inflúensan hefur tekið við af RS-veirunni. Vísir/Vilhelm

Inflúensa sótti í sig veðrið á síðustu heilu viku ársins en 65 manns greindust sem er helmingi fleiri en vikuna á undan.

Inflúensa hefur, samkvæmt tilkynningu frá embætti landlæknis, tekið við að RS veirusýkingu sem algengasta ástæða einangrunar vegna öndunarfæraveira á Landspítala.

Á þessari síðustu heilu viku ársins, frá 23. til 29. desember, voru 22 inniliggjandi með inflúensu, af þeim átta í aldurshópnum 65 ára og eldri en tveir yngri en 5 ára.

Færri greindust með RS veirusýkingu í vikunni en vikurnar á undan, eða 70 manns. Sextán lágu inni á Landspítala með RS veirusýkingu, þar af þrjú börn undir eins árs aldri, tvö á aldrinum eins til fimm ára, og fimm 65 ára og eldri.

Þá greindust einnig átta einstaklingar með COVID-19 og voru sex þeirra inniliggjandi, fjórir 65 ára og eldri en tveir á aldrinum 15 til 64 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×