Fótbolti

Þarf að vera klár á hverjum degi: „Stíg inn í mjög hart um­hverfi“

Aron Guðmundsson skrifar
Gísli verður númer 23 hjá Lech Poznan sem situr á toppi pólsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.
Gísli verður númer 23 hjá Lech Poznan sem situr á toppi pólsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Mynd: Lech Poznan

Eftir að hafa skotist fram á stóra sviðið með liði Víkings Reykja­víkur á síðasta ári hefur Gísli Gott­skálk Þórðar­son verið keyptur til topp­liðsins í Póllandi. Hann stekkur strax í djúpu laugina með liðinu og er mættur til Tyrk­lands í æfinga­ferð

Sam­talið við Lech Poznan hófst á síðasta ári og þegar að hlé kom á þátt­töku Víkings Reykja­víkur í Sam­bands­deildinni og félags­skipta­glugginn opnaði kláruðust skiptin fljótt og

„Sam­talið milli okkar hófst á síðasta ári en svo var erfitt að spila Evrópu­leiki með Víkingum og hugsa út í þetta á meðan,“ segir Gísli í sam­tali við íþrótta­deild. „Þetta voru það mikilvægir leikir sem við vorum að spila og því fór þetta á smá ís þar til hléið tók við. Það var alveg ein­hver að­dragandi að þessu en um leið og félags­skipta­glugginn opnaðist kláraðist þetta mjög fljótt.

Það getur verið krefjandi að vera á milli­stað, ef þú skilur mig. Að tala við félög og vera að spila með Víkingum um leið, það getur verið krefjandi fyrir hausinn. Það er bara gott að þetta sé komið.“

„Veisla framundan“

Gísli fer beint í djúpu laugina. Hann er mættur í æfinga­ferð með Lech Poznan í Tyrk­landi.

„Ég er búinn að fá mjög góðar móttökur hér. Þetta er góður hópur, mikið af leik­mönnum frá Skandinavíu hérna og því aðeins auðvelt að komast inn í þetta. Þeir eru á fullu hér. Það er æft tvisvar á dag, helvíti erfiðar æfingar. Ég tók fyrstu æfinguna í morgun. Þetta verður veisla fram­undan.“

Gísli með treyju Lech Poznan eftir að hafa krotað undir langtímasamning hjá félaginuMynd: Lech Poznan

Gísli er spenntur fyrir því að flytjast bú­ferlum til Poznan.

„Þetta er góð borg, við höfum komið hérna einu sinni áður Víkingarnir. Mjög flott borg og allt að klárast mjög fljótt varðandi mig. Ég er kominn með íbúð og um leið og við komum heim úr æfinga­ferðinni get ég komið mér vel fyrir og ég verð einn kannski fyrsta mánuðinn. Svo koma ein­hverjir vel valdir út sem verða aðeins í kringum mig og passa upp á að allt sé í topp­standi.“

Stefnt á sæti í liðinu frá fyrsta degi

Fjögurra og hálfs árs samningur klár hjá Lech Poznan sem er á toppi pólsku úr­vals­deildarinnar um þessar mundir.

„Auðvitað, eins og alltaf, kemur maður inn í þetta frá fyrsta degi til að berjast um sæti í liðinu. Ég er samt alveg meðvitaður um það, líkt og aðrir, að ég er að taka skref upp á við, kominn í nýtt land og það er nýr þjálfari, nýir liðs­félagar. Þetta getur allt saman tekið tíma en frá fyrsta degi er maður að stefna á sæti í liðinu en maður missir ekki þolin­mæðina um leið.“

Virðir fyrir sér heimavelli Lezh Poznan. Hér hefur hann verið áður, með Víkingum árið 2022Mynd: Lech Poznan

Ástríðufullir stuðningsmenn

Víkingar mættu Lech Poznan í Sam­bands­deildinni árið 2022 og þar fékk Gísli smjörþefinn af því hversu ástríðu­fullir stuðnings­menn liðsins eru þegar að þeir lásu leik­mönnum liðsins pistilinn eftir tap pólska liðsins í Víkinni.

„Félagið býr að al­vöru stuðnings­mönnum sem eru með miklar kröfur. Það er alveg látið í ljós til­finningar sínar eftir leiki ef ekki er allt upp á tíu. Maður er bara meðvitaður um að maður er að stíga inn í mjög hart um­hverfi og þarf að vera klár á hverjum einasta degi.“

Gísli var einn af bestu leik­mönnum Bestu deildarinnar á síðasta tíma­bili og var í lykil­hlut­verki í liði Víkings Reykja­víkur sem er komið alla leið í um­spil um sæti í 16-liða úr­slitum Sam­bands­deildar Evrópu.

Virðir fyrir sér aðstæðurMynd: Lech Poznan

„Auðvitað er alltaf leiðin­legt að fara frá liði sem maður er búinn að vera í lengi. Þetta er frábær hópur og ég mun sakna strákanna. Auðvitað eru þeir að fara spila stóra leiki núna en það hefur alltaf verið mark­miðið síðan að ég kom aftur heim að fara aftur út. Þetta er bara tækifæri sem maður hoppar á ef það gefst. Auðvitað mun ég sakna þess mikið að vera í Víkinni en þetta er bara það sem mig langar að gera. Ég held það hafi allir skilning á því.

Ég fór ungur út og kom svo aftur heim. Vildi komast í full­orðins­bolta. Það tók sinn tíma en ég trúði bara á að þegar ég yrði klár myndi ég grípa mín tækifæri. Ég var bara í mótun sem leik­maður og margt sem spilar þar inn í svo maður sé klár í að spila leiki eins og Víkingur er að spila. Núna var ég til­búinn, greip mín tækifæri. Ég er mjög sáttur með tímann á Ís­landi.“

Gísli Gottskálk í leik með VíkingumVísir/Anton Brink

Vill vinna allt sem mikilvægur leikmaður

Mark­miðin fyrir næstu ári í Póllandi eru klár.

„Byrja á að koma mér vel fyrir og svo á endanum brjóta mér leið inn í liðið. Gera eins vel og hægt er að gera hérna. Þetta er lið sem að keppir um titla og draumurinn væri náttúru­lega að vinna pólsku deildina, pólska bikarinn. Gera það sem mikilvægur leik­maður í liðinu. Það er það sem ég horfi í á næstu fjórum árum. Mark­miðið mitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×