„Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. janúar 2025 23:00 Múte B. Egede, formaður landstjórnar Grænlands, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur héldu sameiginlegan blaðamannafund í dag. AP/Mads Claus Rasmussen Formaður landstjórnar Grænlands segir það aukinn áhuga Bandaríkjanna á landinu jákvæðan. Bandaríkin séu meðal nánustu bandaþjóða en sagði það skýrt að Grænlendingar hefðu ekki áhuga á því að gerast Bandaríkjamenn.
Múte B. Egede, formaður landstjórnarinnar, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, héldu sameiginlegan blaðamannafund í Kristjánsborgarhöll í dag. Mikið hefur verið fjallað um Grænland og framtíð þess í kjölfar hótana Donald Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, að innlima landið. Finnur fyrir sterkum sjálfstæðisvilja Mette segir spurningunni um framtíð Grænlands aðeins geta verið svarað af Grænlendingum sjálfum. „Hvað varðar sjálfstæði, byrjar sú ákvörðun og endar í Nuuk. Grænland tilheyrir Grænlendingum. Þeir ákvarða sjálfir eigin framtíð. Ég finn fyrir sterkum vilja til að stefna í átt að sjálfstæði,“ segir forsætisráðherrann og það tekur Múte undir: Sjá einnig: Af hverju langar Trump í Grænland? „Baráttan fyrir sjálfstæðinu er ekki ný af nálinni. Grænland tilheyrir Grænlendingum. Við viljum ekki vera Danir. Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn. Við viljum vera Grænlendingar,“ segir Múte B. Egede, formaður landstjórnar Grænlands. Óbreytt ástand ekki mögulegt til frambúðar Hann segir þó einnig að samstarfið við Bandaríkin sé mikilvægt og að það muni halda áfram. „En það skal einnig grundvallast á okkar gildum. Samvinna krefst samskipta, að vinna saman, finna lausnir. Það er mikilvægt að vinir ræði saman,“ segir hann. Sjá einnig: Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps „Það sem við viljum er að ná árangri í efnahagsmálum okkar og að öðlast meira sjálfstæði,“ segir Múte. Í samtali við fréttamann grænlenska ríkisútvarpsins í kjölfar fundarins segir Múte að núverandi samband Grænlands og Danmerkur gangi ekki lengur. „Allt fram í dag og síðustu daga hefur óbreytt ástand ekki verið mögulegt. Það höfum við gert skýrt margoft. Við þurfum að fara nýja leið,“ segir hann.
Grænland Danmörk Mest lesið „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Innlent Útgöngubann í borginni í nótt Erlent 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Innlent Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga Innlent Fleiri fréttir „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Útgöngubann í borginni í nótt Vörpuðu fimmtíu sprengjum á þrjú skotmörk í Jemen Trump ekki dæmdur í fangelsi Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Staðfesta að 2024 var heitasta árið í mælingasögunni Sóttu sér meira en milljón ára gamlan ís á Suðurskautslandinu Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Stóru eldarnir enn hömlulausir Hæstiréttur stöðvar ekki dómsuppsögu í máli Trumps Trúir ekki að Trump muni beita hervaldi Íslendingar þurfi að huga að forvörnum með auknum gróðri og skógi Fimm forsetar viðstaddir útför Carters Myndasyrpa: Að minnsta kosti tvö þúsund hús brunnin í Los Angeles Spjallaði við hæstaréttardómara rétt fyrir áfrýjun Fyrrverandi fjármálaráðherra Svíþjóðar látinn Skotbardagi við forsetahöll Tjad Líkurnar á að öfgahægrimaður verði kanslari fara vaxandi Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ „Skóli barnanna er farinn, flestar verslanir og ég veit ekki hversu mörg hús“ Eigandi vefsíðunnar í Pelicot-málinu handtekinn í Frakklandi Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Mette boðar flokksformenn á neyðarfund vegna Grænlands Stjórnlausum eldum fjölgar í LA ESB sektað fyrir að brjóta eigin persónuverndarlög Af hverju langar Trump í Grænland? Sjá meira