Erlent

Tveir látnir eftir að rúta hafnaði á hliðinni

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Akstursskilyrði voru erfið.
Akstursskilyrði voru erfið. AP/Michael Ukas

Rúta á leið frá Berlín til Póllands fór út af veginum og hafnaði á hliðinni með þeim afleiðingum að tveir létu lífið og fjórir slösuðust alvarlega.

Slysið átti sér stað á A11-hraðbrautinni í nágrenni við Prenzlau norðaustur af Berlín, samkvæmt miðlinum Guardian. Auk hinna fjóru slösuðust sjö misalvarlega.

Enginn annar bíll átti þátt í slysinu og óljóst er hverjar orsakir þess eru. Hált var þó og snjóþekja á veginum. Hin látnu voru 29 ára kona og 48 ára karlmaður.

Samkvæmt umfjöllun Guardian var rútan á vegum þýska fyrirtækisins Flixbus og var á leið sinni til Póllands frá þýsku höfuðborginni þegar slysið átti sér stað. Nánar tiltekið til borgarinnar Szczecin á landamærunum með 13 farþega auk ökumanns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×