Innlent

Brýnt að endur­skoða atkvæðagreiðslu utan kjör­fundar

Jón Þór Stefánsson skrifar
Kristín Edwald er formaður Landskjörstjórnar.
Kristín Edwald er formaður Landskjörstjórnar. Vísir/Vilhelm

Það er mat Landskjörstjórnar að brýnt sé að endurskoða framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu, bæði hér á landi sem og erlendis. Í þessari endurskoðun væri mikilvægt að skoða sérstaklega hvort unnt væri að gera framkvæmdina skilvirkari og öruggari.

Þetta kemur fram í umsögn Landskjörstjórnar um Alþingskosningarnar sem fóru fram 30. nóvember síðastliðinn.

„Umsýsla við atkvæðagreiðsluna er umfangsmikil og þar sem framkvæmdin er viðkvæm fyrir utanaðkomandi þáttum, sérstaklega varðandi flutning eða sendingar atkvæðisbréfa til meðferðar og eftir atvikum til talningar, er hætta fyrir hendi á að atkvæði misfarist eða verði ekki tekin til greina af ástæðum sem ekki eru á ábyrgð kjósandans sjálfs. Að mati landskjörstjórnar eru ýmis tækifæri í framþróun kosningaframkvæmdar, einkum á sviði utankjörfundaratkvæðagreiðslu, og er stafræn þróun þar ekki undanskilin.“

Í niðurstöðukafla umsagnar Landskjörstjórnar segir að vissulega sé ekki endilega æskilegt að breyta kosningalögum oft og skammt fyrir kosningar, en þar sem næstu fyrirhuguðu kosningar verði í maí 2026 sé æskilegt að nýta tímann til að skoða mögulegar breytingar.

„Það hafa komið upp ýmis tilvik og dæmi um nauðsyn þess að yfirfara og samræma ýmis ákvæði í lögunum, með tilliti til ferla, hlutverka og ábyrgðar, með það að leiðarljósi að treysta örugga og skilvirka kosningaframkvæmd,“ segir í umsögninni.

Þó segir að almennt hafi framkvæmd Alþingiskosninganna gengið vel þegar á heildina sé litið. Tímaáætlanir hafi staðist að mestu leyti þrátt fyrir hríðarbyl og óveður víðs vegar um landið. Kjörstjórnin þakkar samvinnu fjölmarra einstaklinga, samtaka og stofnanna að því leyti.

Þessari umsögn var skilað til níu manna undirbúningsnefndar Alþingis í dag. Nefndin hefur víðtæka heimild til að rannsaka álítaefni og getur farið fram á endurtalnignu.

Í umsögninni eru líka tekin fyrir ágreiningsseðlar úr þremur kjördæmum, og tvær kærur sem bárust vegna kosninganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×