Vara við hvirfilbyljum á Bretlandseyjum Samúel Karl Ólason skrifar 23. janúar 2025 10:50 Rauða viðvörun morgundagsins nær til norðurhluta Íralnds og Skotlands. Veðurstofa Bretlands Breskir veðurfræðingar hafa gefið út rauða viðvörun á norðurhluta Írlands og í Skotlandi vegna öflugrar lægðar sem liggur vestur af Bretlandseyjum. Búist er við mjög öflugum vindhviðum á Bretlandseyjum á morgun og hefur einnig verið varað við mögulegum hvirfilbyljum vegna lægðarinnar.
Appelsínugular og gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir allt England og Skotland á morgun. Óveður þetta kallast Eowyn og mun töluverð rigning og snjókoma fylgja því. Búist er við því samkvæmt Sky News að „mjög hættulegar“ aðstæður muni skapast og er talið að óveðrið muni leiða til mikilla truflana. Búist er við um fjörutíu m/s vindhviðum vegna Eowyn. Í tilkynningu á vef Veðurstofu Bretlandseyja segir að þetta sé í fyrsta sinn sem rauð viðvörun sé gefin út fyrir norðurhluta Írlands, frá því litakerfið var tekið í notkun árið 2011. Haft er eftir yfirmanni spádeildar veðurstofunnar að rauðar viðvaranir séu eingöngu gefnar út þegar talið sé að veður geti ógnað mannslífum og valdið miklum truflunum. Það eigi við á morgun. Evrópskir veðurfræðingar hafa varað við hættu á hvirfilbyljum vegna óveðursins. Sky segir búist við því að vegum verði lokað víða og það sama eigi við lestaferðir um norðanvert England.
Bretland Írland Skotland Náttúruhamfarir Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira