Allir komnir í loftsteikningarofnana Jakob Bjarnar skrifar 4. febrúar 2025 14:44 Matargyðjan Nanna Rögnvaldardóttir hitti naglann á höfuðið þegar hún tók sig til og þýddi matreiðslubókina Létt og loftsteikt í Air Fryer eftir Nathan Anthony. vísir/vilhelm Fyrsti bóksölulisti Félags íslenskra útgefenda er kominn út og nú er annað uppi á teningunum en skömmu fyrir jólin. Nú er fólk greinilega að læra á Air Fryer-græjuna sína. „
Já. Á toppnum matreiðslubókin Létt og loftsteikt í Air Fryer eftir Nathan Anthony í þýðingu matargyðjunnar Nönnu Rögnvaldardóttur. Hún trónir á toppnum,“ segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Fibut. Samkvæmt þessum lista hefur þjóðin sannarlega tekið loftsteikingarofnana upp á arma sína og virðast lítil takmörk á því hvað hægt er að galdra fram úr þessum græjum. „Þetta er fyrsta matreiðslubókin sérstaklega fyrir þessa eldunaraðferð sem kemur út á íslensku og miðað við vinsældir þessarar eldunaraðferðar eiga þær örugglega eftir að verða fleiri,“ segir Bryndís. Bóksölulistinn er afar hnýsilegur á að líta. Almanak Háskóla Íslands situr í öðru sæti líkt og oft áður á þessum árstíma og splunkuný kiljuútgáfa einnar söluhæstu skáldsögu síðasta árs, Í skugga trjánna, eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, situr í þriðja sæti. Bóksalar völdu hana einmitt skáldsögu ársins í fyrra og er nýjasta skáldsaga Guðrúnar örugglega sú sem hefur notið mestrar hylli bókakaupenda. Óhætt er að segja að hún hafi slegið í gegn á síðasta ári. Þá er athyglisvert að sjá bók Páls Valssonar, Vigdís - Kona verður forseti, bók sem kom út fyrir býsna löngu (2009) og má örugglega rekja áhuga lesenda til rómaðra þátta um Vigdísi sem voru á dagskrá RÚV fyrir skömmu. Benjamín Dúfa Friðriks Erlingssonar virðist svo vera á leslista einhvers menntaskólans að þessu sinni. Bóksölulistinn - 20 söluhæstu bækurnar í janúar: 1. Létt og loftsteikt í Air Fryer - Nathan Anthony, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir 2. Almanak Háskóla Íslands 2025 - Gunnlaugur Björnsson og Páll Jakobsson 3. Í skugga trjánna - kilja - Guðrún Eva Mínervudóttir 4. Leynigesturinn - Nita Prose, þýð. Magnea J. Matthíasdóttir 5. Börn í Reykjavík - Guðjón Friðriksson 6. Kóngurinn af Ósi: Kóngsríkið 2 - Jo Nesbø, þýð. Bjarni Gunnarsson 7. Ótrúlega skynugar skepnur - Shelby van Pelt, þýð. Nanna Brynhildur Þórsdóttir 8. Ferðalok - kilja - Arnaldur Indriðason 9. Úr myrkrinu - kilja - Ragnheiður Gestsdóttir 10. Gestir - Hildur Knútsdóttir 11. Stjáni og stríðnispúkarnir 12 - Gistipúkar - Zanna Davidson, þýð. Jónína Ólafsdóttir 12. Tjörnin - Rán Flygenring 13. Litlir lærdómshestar-Stafir - Elisabeth Golding, þýð. Sigurgeir Orri Sigurgeirsson 14. Horfin athygli - Johann Hari, þýð. Hugrún H. Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson 15. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal 16. Iceguys - Heiða Þorbergsdóttir 17. Sjálfsræktardagbókin 2025 - Inga, Helga og Margrét 18. Benjamín dúfa - Friðrik Erlingsson 19. Bluey - 5 mínútna sögur - Joe Brumm,þýð. Andri Karel Ásgeirsson 20. Vigdís - Kona verður forseti - Páll Valsson
Bókaútgáfa Neytendur Tengdar fréttir Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Ferðalok Arnaldar Indriðasonar var mest selda bók síðasta árs samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda. Sé litið til síðustu tíu ára, þá hefur Arnaldur sjö sinnum átt söluhæstu bók ársins. Þetta segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Fíbút. 8. janúar 2025 10:03 Mest lesið Appelsínugular viðvaranir: Gæti minnt á óveðrið 2015 Veður Kínverjar grípa til aðgerða mínútum eftir að nýir tollar taka gildi Erlent Björgólfur Guðmundsson er látinn Innlent Sveitarfélögin leiki sér að prósentum til að draga upp aðra mynd Innlent Tjakkurinn brást og maður klemmdist undir bíl Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi: Ibrahim hafi verið sjáanlegur í rúma hálfa mínútu Innlent Svona var stemmningin við setningu Alþingis Innlent Skotárás í sænskum skóla Erlent Segir kennara ekki hafa komið með formlegt tilboð Innlent Kastljósið beinist að Guðrúnu Innlent Fleiri fréttir Kastljósið beinist að Guðrúnu Allir komnir í loftsteikingarofnana Icelandair aflýsir 38 flugferðum vegna veðurs Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi: Ibrahim hafi verið sjáanlegur í rúma hálfa mínútu Aukin hætta á gosi gæti varað í nokkrar vikur Loka öllum endurvinnslustöðvum á morgun vegna veðurs Svona var stemmningin við setningu Alþingis Gatnagerðargjöld hækka í Reykjavík Sveitarfélögin leiki sér að prósentum til að draga upp aðra mynd Kennarar hafna því að 20 prósenta launahækkun hafi verið í boði Fær að dúsa inni í mánuð til Segir kennara ekki hafa komið með formlegt tilboð Ráðin til Samfylkingarinnar Tilraun með basa í Hvalfirði ekki sögð hættuleg lífríki Mörg hundruð manns vilji klæmast við börn Aflýsa óvissustigi á Austfjörðum Björgólfur Guðmundsson er látinn Tjakkurinn brást og maður klemmdist undir bíl „Kennarar eiga skilið hærri laun og mega berjast fyrir því“ Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Rauðavatn Eldur kom upp í matarvagni Vígðu bleikan bekk við skólann Guðlaugur ætlar ekki í formanninn Kennarar hafi hafnað 20 prósenta launahækkun Börnin sem sitja heima, tollastríð og gáttaður Grammy-verðlaunahafi Ríkisstjórnin sýndi á spilin Samþykkt að fjölga lögreglumönnum Stefna kennurum Söguleg skipun Agnesar Vilja finna fimm Íslendinga og vísa þeim úr landi Sjá meira
Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Ferðalok Arnaldar Indriðasonar var mest selda bók síðasta árs samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda. Sé litið til síðustu tíu ára, þá hefur Arnaldur sjö sinnum átt söluhæstu bók ársins. Þetta segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Fíbút. 8. janúar 2025 10:03