Einn látinn í Mannheim eftir að bíl var ekið á fólk Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. mars 2025 13:06 Frá Paradeplatz. René Priebe/dpa via AP Einn er látinn og nokkrir eru slasaðir eftir að bíl var ekið á hóp fólks í miðborg Mannheim á Paradeplatz. Einn hefur verið handtekinn á vettvangi. Þetta staðfestir lögreglan í borginni. Áður hafði verið greint frá því að lögregluyfirvöld hefðu mikinn viðbúnað á svæðinu.
Í umfjöllun Guardian segir að svörtum bíl hafi verið keyrt inn í mannskara á torginu. Áður hafði komið fram að nokkrir væru taldir slasaðir. Nú hefur Guardian eftir lögreglunni í borginni að einn sé látinn. Einn hafi verið handtekinn. Er kannað hvort fleiri tengist málinu. Þá segir staðarmiðillinn Die Rheinpfalz að mikill viðbúnaður lögreglu á á svæðinu. Sjúkrahús á svæðinu hafi verið beðin um að auka viðbúnaðarstig sitt. Íbúum er ráðlagt að halda sig frá miðborginni. Fram kemur í umfjöllun Guardian að þessa dagana séu kjötkveðjuhátíðir haldnar víða um Þýskaland og þar á meðal í Mannheim. Skrúðganga hafi verið farin í gær og voru frekari viðburðir skipulagðir á morgun. Þetta hafi þýtt að mikill mannskari hafi verið í miðborginni. Lögreglan í Mannheim hefur sent frá sér tilkynningu vegna málsins. Þar er það staðfest að bílnum hafi verið ekið á fólkið á torginu. Einn sé látinn og nokkrir slasaðir. Ekki kemur fram hve margir. Þá segir lögregla að einn hafi verið handtekinn. Segir hún að frekari upplýsingar fáist ekki að svo stöddu. Rúmur mánuður er síðan maður keyrði bíl inn í þvögu mótmælenda í Munich í Þýskalandi, með þeim afleiðingum að tveir létust. Í desember létust sex manns þegar bíl var ekið á fólk þar sem það var statt á jólamarkaði í Magdeburg. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þýskaland Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Sjá meira