Atalanta mistókst að hirða toppsætið af Inter Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. mars 2025 21:46 Lautaro Martinez innsiglaði sigur Inter. Mattia Ozbot - Inter/Inter via Getty Images Inter trónir enn á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2-0 útisigur gegn Atalanta í toppslag helgarinnar.
Fyrir leik kvöldsins sat Inter á toppi ítölsku deildarinnar með 61 stig, þremur stigum meira en Atalanta sem sat í þriðja sæti. Atalanta hefði því getað tyllt sér á toppinn með sigri. Það voru hins vegar gestirnir í Inter sem reyndust sterkari og Carlos Augusto kom liðinu yfir á 54. mínútu. Heimamenn komu sér svo í frekari vandræði þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Brasilíski miðjumaðurinn Ederson átti þá eitthvað vantalað við dómara leiksins og lét gamminn geysa. Fyrir vikið fékk hann að líta gula spjaldið. Ederson lét það þó ekki stoppa sig og hélt áfram þar til að dómarinn sýndi honum gula spjaldið í annað skipti og þar með rautt. Gestirnir nýttu sér liðsmuninn og Lautaro Martinez tryggði liðinu 2-0 sigur með marki á 87. mínútu áður en Gian Piero Gasperini, þjálfari Atalanta, nældi sér sjálfur í rautt spjald. Gestirnir nældu sér einnig í rautt spjald í leiknum því Alessandro Bastoni fékk að líta sitt annað gula spjald á fimmtu mínútu uppbótartíma. Niðurstaðan því að lokum 2-0 sigur Inter sem trónir enn á toppi ítölsku deildarinnar, nú með 64 stig eftir 29 leiki, sex stigum meira en Atalanta sem situr í þriðja sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira