Innlent

Mengun úr jarð­vegi or­sakaði skrýtið bragð af neyslu­vatni

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Margar ábendingar bárust bænum um að skrýtið bragð væri af neysluvatni í Hveragerði.
Margar ábendingar bárust bænum um að skrýtið bragð væri af neysluvatni í Hveragerði. Vísir/Vilhelm

Mengun úr jarðvegi í neysluvatni Hvergerðinga orsakaði lyktar- og bragðgalla á vatninu. Samkvæmt Heilbrigðiseftirliti Suðurlands er öruggt að drekka vatnið.

„Mögulega hafi borun nýrrar neysluvatnsborholu á svæðinu komið hreyfingu á jarðveginn og orsakað skert gæði neysluvatns en ekki öryggi. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ítrekar að vatnið er ekki talið heilsuspillandi þrátt fyrir að gæði þess séu ekki viðunandi,“ stendur í tilkynningu á heimasíðu Hveragerðisbæjar.

Útskolun úr kerfinu ætti að taka einhvern tíma samkvæmt eftirlitinu. Íbúar geti kosið að neyta flöskuvatns á meðan það ástand varir.

„Ástand neysluvatns í Hveragerði er vel vaktað og regluleg sýni eru og verð áfram tekin og rannsökuð,“ segir í tilkynningunni.

Tekið var sýni úr neysluvatninu í Hveragerði í byrjun vikunnar eftir að ábendingar bárust frá íbúum um skrýtna lykt og bragð af vatninu. 

Fyrstu vísbendingar úr sýnunum bárust degi seinna þar sem kom í ljós að vatnið væri ekki óhæft til neyslu.


Tengdar fréttir

Ekkert bendi til að vatnið sé óneyslu­hæft

Sýnataka af neysluvatni í Hveragerði hefur ekki leitt í ljós að það sé óneysluhæft. Ábendingar höfðu borist heilbrigðiseftirlitinu um að bragð og lykt af vatninu væru ekki sem skyldi. Málið er enn til rannsóknar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×