Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga Sólrún María Ólafsdóttir skrifar 4. apríl 2025 11:31 Þessa dagana verðum við vitni að þjáningum á áður óþekktum skala vegna átaka og hamfara víðs vegar um heiminn. Á sama tíma dragast saman á heimsvísu framlög til neyðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. Vopnuð átök hafa aldrei verið fleiri í heiminum og við horfum upp á alþjóðleg mannúðarlög þverbrotin. Í þessum aðstæðum eru það almennir borgarar sem þjást mest. Eitt af hverjum fimm börnum er á átakasvæðum eða að flýja átakasvæði en fjöldi fólks á flótta eykst ár frá ári. Á síðasta ári voru tæpar 123 milljónir einstaklinga á vergangi, stærstur hluti þeirra í lág- og miðtekjuríkjum. Á sama tíma upplifum við hitnandi heim. Loftslagsbreytingar stórauka líkur á miklum náttúruhamförum sem samfélög eru misvel í stakk búin að takast á við. Þau ríki sem minnst hafa lagt til af gróðurhúsalofttegundum eru oft þau sem eru hvað varnarlausust gagnvart afleiðingum þeirra; flóðum, þurrkum, hitabylgjum og aftakaveðrum. Hátt í 167 milljónir einstaklinga í heiminum lifa við alvarlegt fæðuóöryggi. Ójöfnuður, til dæmis hvað varðar aðgengi að heilbrigðisþjónustu, og efnahagslegar þrengingar gera stöðuna enn erfiðari. Ef litið er á jafnrétti kynjanna eigum við enn langt í land og kynferðislegt og kynbundið ofbeldi er útbreitt. Ein af hverjum þremur konum verður fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi og ein af hverjum fimm ungum konum er gift fyrir 18 ára aldur. Mannúðarkrísur eru nú á dögum stærri, lengri og flóknari en áður, þar sem margir þættir tvinnast saman. Því er nú sem aldrei fyrr nauðsynlegt að standa vörð um jafnrétti, mannréttindi og umhverfið og efla bæði þróunarsamvinnu og mannúðarstarf. Í stað þess að draga úr framlögum til þróunarsamvinnu eins og við sjáum ríki gera, væri nær að auka þau. Ríki, stofnanir og samtök þurfa líka að gera enn betur í að auka skilvirkni og árangur og tryggja að takmörkuð framlög til þróunarsamvinnu og mannúðarstarfs nýtist sem best þeim sem þurfa mest á aðstoð að halda. Lykilþáttur í því er að heimafólk á hverjum stað leiði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð, að hlutverk okkar hér heima á Íslandi sé að efla það og styðja. Við munum ekki ná markmiðum okkar um sanngjarnan og sjálfbæran heim án þess að heimafólk leiði starfið. Þau þekkja aðstæður best og eru fyrst á vettvang þegar hamfarir ríða yfir. Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans eru hluti af samfélaginu, hvert í sínu landi. Þau eru á vettvangi, á meðan og eftir að neyðarástand skapast. Að þau séu vel undirbúin, geti brugðist hratt við neyð og séu til staðar til lengri tíma er lykill að árangursríku mannúðar- og uppbyggingarstarfi. Að heimamenn leiði starfið, jafnrétti, mannréttindi og sjálfbærni umhverfis eru áhersluatriði í samvinnu utanríkisráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi en áðurnefnd undirrituðu nýverið rammasamning um verkefni á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar. Samningurinn á að auka árangur og skilvirkni Íslands á þessum sviðum með því að gera fjármögnun þróunarsamvinnuverkefna og mannúðaraðstoðar fyrirsjáanlegri og auðvelda og einfalda skipulagningu verkefna og viðbragða. Fyrri rammasamningar hafa uppfyllt sett markmið. Þeir gerðu Rauða krossinum á Íslandi m.a. kleift að styðja sómalska Rauða hálfmánann til að ná til samfélaga með fræðslu um skaðsemi umskurðar kvenna og annars kynbundins ofbeldis. Yfir 18 þúsund íbúar afskekktra svæða nutu góðs af þeirri fræðslu. Malavíski Rauði krossinn veitti 103 þúsund einstaklingum heilbrigðisfræðslu, þ.m.t. fræðslu um kyn og frjósemisheilbrigði og á verkefnasvæðum hefur aðgengi að hreinu vatni og salernum stóraukist. Rauði krossinn í Síerra Leóne hefur aðstoðað afskekkt samfélög við að rækta græðlinga og gróðursetja yfir tvær miljónir trjáa til að vinna gegn fátækt og valdefla konur sem virka þátttakendur, auk þess að endurheimta skóglendi og binda jarðveg. Palestínski Rauði hálfmáninn í Líbanon hefur styrkt getu sína til þess að veita þjónustu í palestínskum flóttamannabúðum. Ofangreint er aðeins lítið brot af þeim árangri sem náðst hefur með stuðningi Rauða krossins á Íslandi og utanríkisráðuneytisins auk annarra bakjarla, á við Mannvini Rauða krossins. Undanfarin ár hafa hundruð þúsunda víðsvegar um heim notið góðs af þessu samstarfi. Undanfarna áratugi hefur ýmislegt unnist á heimsvísu, til að mynda hefur tíðni barnadauða lækkað, nýjum HIV-smitum fækkað og aðgengi að öruggu drykkjarvatni og hreinlæti aukist. Þeim árangri er nú stefnt í voða er krísur vaxa og framlög til mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu dragast saman. Vaxandi neyð kallar ekki einungis á aukna þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð, heldur einnig á að sú aðstoð og samvinna sé betri, að við beinum henni á sem áhrifaríkastan hátt og til þeirra sem þurfa hana mest, í fátækustu ríkjunum. Höfundur er teymisstjóri alþjóðaverkefna hjá Rauða krossinum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þróunarsamvinna Félagasamtök Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar